
Veðrabreyting framundan – varað við slabbi og hálku í kvöld
Framan af degi verður fremur hæg breytileg átt og bjart að mestu, frost 2 til 11 stig. Gengur í sunnan 5-13 m/s á Suður- og Vesturlandi síðdegis í dag og þykknar upp með rigningu eða snjókomu með köflum. Hlýnar smám saman í veðri. Á morgun verður sunnan 10-18 m/sek og talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en væta með köflum norðaustantil. Hiti 3 til 10 stig. Heldur hægari annað kvöld, kólnar og dregur úr úrkomu.
Vegagerðin bendir á að í þann mund sem hlánar eftir kuldatíðina að undanförnu, verður hált á vegum og jafnvel flughált. Suðvestan- og vestanlands fylgir bleytusnjór á láglendi eftir kl. 18 í kvöld.