Fréttir

true

Gáfu Samhug í Borgarbyggð þúsund krónur fyrir hvert stáltonn sem safnað var

Í hádeginu í gær mætti Gunnar Þór Garðarsson framkvæmdastjóri málmendurvinnslufyrirtækisins Furu á skrifstofu Borgarbyggðar. Tilefnið var að færa góðgerðarsamtökunum Samhugur í Borgarbyggð gjöf sem nemur eitt þúsund krónum af hverju tonni af brotajárni sem fyrirtækið safnaði í sveitarfélaginu í haust. Alls var að sögn Gunnars safnað rétt tæplega 200 tonnum af málmum og sorpi til…Lesa meira

true

Fyrsti glugginn í jóladagatali Skaginn syngur inn jólin

Í morgun var fyrsti glugginn opnaður í jóladagatalinu á Akranesi; Skaginn syngur inn jólin. Dagatalagluggarnir verða svo opnaðir hver af fætur öðrum allar helgar til jóla á Facebook síðunni Skaginn syngur inn jólin. Í minningu Tinnu Óskar Grímarsdóttur er fyrsti glugginn lagið Ég kemst í hátíðarskap, sem Tinna Ósk og Axer Freyr eiginmaður hennar tóku…Lesa meira

true

Stefnt að malbikun Borgarbrautar fyrir jól

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var að beiðni Sigurðar Guðmundssonar byggðarráðsfulltrúa rætt um stöðu gatnagerðarframkvæmda í sveitarfélaginu með áherslu á endurnýjun Borgarbrautar. Á fundinum kom fram að samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdaraðilum er nú unnið að undirbúningi fyrir malbikun á þeim hluta Borgarbrautar þar sem framkvæmdir hafa undanfarna mánuði staðið yfir og er nú hefill…Lesa meira

true

Reykskynjari bjargar mannslífum!

Dagur reykskynjarans er í dag, 1. desember. Þetta litla en magnaða öryggistæki er það mikilvægasta af öllum tækjum heimilisins. Slökkvilið landsins og Vertu eldklár, forvarnarverkefni HMS, standa saman að eldvarnarátaki sem hefst í dag þar sem allir landsmenn eru hvatir til að huga að brunavörnum heimilisins. Reykskynjarinn vakir yfir þér og þínu fólki. Eldurinn læðist…Lesa meira

true

Mannamót Markaðsstofanna í janúar

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verða haldin í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 18. janúar 2024 frá klukkan 12:00 til 17:00. Það er haldið í samstarfi við Erni og Isavia innanlands. Mannamót eru fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem hátt í þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki…Lesa meira

true

Margir sóttu fræðsluerindi í Hjálmakletti

Fjölmennt var á fræðsluerindi sem fram fór síðasta þriðjudag í Hjálmakletti í Borgarnesi. Stýrihópur um forvarnir, heilsueflingu og barnvænt sveitarfélag stóð fyrir erindinu „Hvernig setjum við mörk á uppbyggilegan hátt,“ með Önnu Steinsen. Fræðsluerindinu var einnig streymt og voru margir sem nýttu sér það.Lesa meira

true

Útvarp Akranes verður í loftinu um helgina

Sundfélag Akraness sendir Útvarp Akranes út á aðventunni eins og venja er. Útvarpið er löngu orðinn fastur liður í jólaundirbúningi Akurnesinga en það er jafnframt ein mikilvægasta fjáröflun sundfélagsins. Félagið hefur staðið fyrir útvarpinu á aðventunni allar götur síðan 1988. Dagskráin í ár er fjölbreytt að vanda en mikill fjöldi Akurnesinga og gesta hefur komið…Lesa meira

true

Tveggja ára samningur í burðarliðnum um gáma- og bátasvæðið á Breið

Á fundi bæjarstjórnar Akraness síðasta þriðjudag var farið yfir fyrirhugaðan samning Sæljóns, félags smábátaeigenda á Akranesi, Brims hf., Akraneskaupstaðar og Faxaflóahafna sf. varðandi afnot og rekstur lóðanna Hafnarbrautar 15 og Breiðargötu 3. Í honum kemur fram að á tíunda áratug síðustu aldar kom Akraneshöfn upp geymslusvæði fyrir gáma og báta á Breið á Akranesi. Síðustu…Lesa meira

true

Jólapeysudagur í FVA

Kennarar og nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi klæddu sig í sínar fínustu jólapeysur á alþjóðlega jólapeysudeginum, bara grín!, en hann var alla vega haldinn hátíðlegur í FVA í dag. Kennarar skólans tóku þátt af fullum krafti eins og þeim er einum lagið en nemendur eitthvað minna enda oft nóg að muna eftir skólatöskunni, hvað…Lesa meira

true

Óska eftir skýringum vegna hækkunar á gjaldskrá strætisvagna

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 23. nóvember síðastliðinn var lögð fram áætlun frá formannafundi UMSB þar sem óskað var eftir stuðningi sveitarfélagsins við að koma til móts við ferðakostnað barna og ungmenna vegna æfinga og keppni. Í fundargerð segir að mikilvægt sé að börn og unglingar hafi tækifæri til að stunda íþróttir á jafnræðisgrunni. „Borgarbyggð hefur…Lesa meira