
Frá afhendingu styrks Furu til Samhugar í Borgarbyggð. F.v. Gunnar Þór Garðarsson framkvæmdastjóri Furu, Margrét Katrín Guðnadóttir sem er í forsvari fyrir Samhug í Borgarbyggð, Sigrún Ólafsdóttir formaður umhverfis- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar og Sóley Birna Baldursdóttir deildarstjóri. Ljósm. mm
Gáfu Samhug í Borgarbyggð þúsund krónur fyrir hvert stáltonn sem safnað var
Í hádeginu í gær mætti Gunnar Þór Garðarsson framkvæmdastjóri málmendurvinnslufyrirtækisins Furu á skrifstofu Borgarbyggðar. Tilefnið var að færa góðgerðarsamtökunum Samhugur í Borgarbyggð gjöf sem nemur eitt þúsund krónum af hverju tonni af brotajárni sem fyrirtækið safnaði í sveitarfélaginu í haust. Alls var að sögn Gunnars safnað rétt tæplega 200 tonnum af málmum og sorpi til endurvinnslu frá 37 lögbýlum í sveitarfélaginu. Farið var á þá bæi sem þess óskuðu með krana og trailer flutningabíl og tekin stærri og minni tæki og annar málmur til endurvinnslu. Allt var flutt í flokkunarstöð fyrirtækisins í Hafnarfirði og í framhaldinu flutt út til endurvinnslu.