Fyrsti glugginn í jóladagatali Skaginn syngur inn jólin

Í morgun var fyrsti glugginn opnaður í jóladagatalinu á Akranesi; Skaginn syngur inn jólin. Dagatalagluggarnir verða svo opnaðir hver af fætur öðrum allar helgar til jóla á Facebook síðunni Skaginn syngur inn jólin. Í minningu Tinnu Óskar Grímarsdóttur er fyrsti glugginn lagið Ég kemst í hátíðarskap, sem Tinna Ósk og Axer Freyr eiginmaður hennar tóku upp á aðventunni 2022. Tinna Ósk var þá að berjast við sjúkdóm, en hún féll frá eftir erfið veikindi 11. febrúar 2023.

Fyrsti glugginn í jóladagatali Skaginn syngur inn jólin - Skessuhorn