Svæðið sem um ræðir er fyrir miðri mynd. Ljósm. Skessuhorn

Tveggja ára samningur í burðarliðnum um gáma- og bátasvæðið á Breið

Á fundi bæjarstjórnar Akraness síðasta þriðjudag var farið yfir fyrirhugaðan samning Sæljóns, félags smábátaeigenda á Akranesi, Brims hf., Akraneskaupstaðar og Faxaflóahafna sf. varðandi afnot og rekstur lóðanna Hafnarbrautar 15 og Breiðargötu 3. Í honum kemur fram að á tíunda áratug síðustu aldar kom Akraneshöfn upp geymslusvæði fyrir gáma og báta á Breið á Akranesi. Síðustu ár hafa Faxaflóahafnir verið með svæðið í sinni umsjá og rekstri og skiptist það í tvær lóðir sem eru Hafnarbraut 15 sem er í eigu Brims hf. og Breiðargata sem er í sameign Brims hf, (83%) og Akraneskaupstaðar (17%). Aðilum samnings þessa eru ljós áform um vinnu við deiliskipulag svæðisins og að afnot svæðisins eru takmörkuð í tíma þegar fyrirhugaðar framkvæmdir á því fara af stað.

Tveggja ára samningur í burðarliðnum um gáma- og bátasvæðið á Breið - Skessuhorn