
Fimmtudaginn 23. mars mun Kalman listafélag standa fyrir tónleikum í Vinaminni á Akranesi. Þar munu hinir þjóðkunnu listamenn, Diddú og Jónas Þórir, mæta með skemmtilegt og fjörugt prógram við allra hæfi. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Yfirskrift söngskemmtunarinnar er „Úr ýmsum áttum – eitthvað fyrir alla“ en Diddú og Jónas hafa starfað saman á vængjum söngsins…Lesa meira








