Fréttir

true

Flæðir yfir vegi í Lundarreykjadal – myndband

Víðast hvar streyma nú ár upp úr farvegi sínum vegna leysinga en ástandið er þó misalvarlegt á landinu. Á myndbandinu hér fyrir neðan má sjá Grímsá við Oddsstaði í Lundarreykjadal en áin flæðir nú yfir veginn beggja megin við brúnna. Myndbandið tók Þór Þorsteinsson.Lesa meira

true

Hlaut nafnbótina Manneskja Borgarfjarðar

Manneskja Borgarfjarðar 2022 var útnefnd á þorrablóti í Borgarnesi um liðna helgi. Var það Eiður Sigurðsson sem hlaut nafnbótina í ár. Eiður hlaut tilnefninguna fyrir störf sín í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi en þar hefur hann sinnt góðu starfi allar götur síðan 1997. ,,Mér fannst þetta í rauninni alveg frábært og mikill heiður. Hér vinn ég…Lesa meira

true

Sinntu óveðursútköllum í Ólafsvík

Mikið hefur verið að gera hjá björgunarsveitarmönnum í Lífsbjörgu í Snæfellsbæ í morgun og fram yfir hádegi, vegna óveðurs. Hafa björgunarmenn sinnt óveðursútköllum. Einkum hefur verið um að fjúkandi þakplötur að ræða, en mjög hvasst er í Ólafsvík. Sveitin færði einnig til húsbíl sem var við það að fjúka, festi landfestar og tryggði kofa sem…Lesa meira

true

Skagamenn unnu Vestra í markaleik

ÍA og Vestri mættust í fyrstu umferð í riðli 1 í A deild í Lengjubikar karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Liðin leika bæði í Lengjudeildinni í sumar og miklar breytingar hafa átt sér stað í leikmannahópum liðanna frá síðasta tímabili. Vestri komst yfir í leiknum á 13. mínútu með…Lesa meira

true

Varað við skurði sem fullur er af vatni og krapa

Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að skurður við hlið Leynisbrautar sé fullur af vatni og krapa. Íbúar eru varaðir við þeirri hættu sem gæti skapast á svæðinu, sérstaklega ef börn eru að leik í nágrenni við skurðinn. Fylgst verður með svæðinu meðan þetta ástand varir og þess gætt að vatn tæmist af svæðinu.Lesa meira

true

Ár og lækir í miklum ham

Miklar leysingar eru nú um allt Vesturland enda hlýtt í veðri og víða hafa verið klakastíflur sem rofna. Vegagerðin varar við þessu auk þess að hafa áhyggjur af aurskriðum, sérlega á Vesturlandi. Varað er einnig við hættu á steinkasti og brotholum í malbiki vegna leysinga. Ár og lækir flæða víða yfir bakka sína og yfir…Lesa meira

true

Stíflan í Norðurá brostin – MYNDBAND

Síðustu daga hefur Norðuráin flætt yfir bakka sína í Norðurárdal vegna klakastíflu sem virðist nú vera að losna en miklar leysingar hafa verið síðustu daga. Varað hefur verið við því að áin geti flætt upp á þjóðveginn í dag og skilið þar eftir sig klaka og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát í akstri…Lesa meira

true

Skallagrímur færist upp í 4. deildina

Knattspyrnufélagið Einherji frá Vopnafirði tilkynnti í byrjun febrúar að liðið myndi ekki senda lið til keppni í meistaraflokki karla á komandi tímabili. Einherji vann 4. deildina á síðasta tímabili og átti að spila í 3. deild í sumar. Fyrir helgi varð það ljóst að lið Skallagríms úr Borgarnesi mun taka sæti Ýmis úr Kópavogi í…Lesa meira

true

Skallagrímur vann Sindra með flautukörfu – MYNDBAND

Skallagrímur og Sindri mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Fyrir leik voru liðin í þriðja og fjórða sæti deildarinnar, Sindri með 24 stig og Skallagrímur með 20 stig og líklegt að um spennandi viðureign yrði að ræða sem svo varð sannarlega raunin. Skallagrímur byrjaði…Lesa meira

true

Varað við vatnavöxtum og mögulega klökum á vegi

Ýmsar viðvaranir koma fram á vef Vegagerðarinnar um færð á Vesturlandi. Almennt er varað er við hættu á steinkasti, brotholum í malbiki vegna leysinga og vatni sem flæðir víða yfir vegi. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát. Meðal annars flæðir vatn víða yfir vegi í Dölum. Skógarstrandarvegur er ófær vegna vatnaskemmda og vatn flæðir…Lesa meira