Milorad Sedlarevic var hetja Skallagríms gegn Sindra. Ljósm. glh

Skallagrímur vann Sindra með flautukörfu – MYNDBAND

Skallagrímur og Sindri mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Fyrir leik voru liðin í þriðja og fjórða sæti deildarinnar, Sindri með 24 stig og Skallagrímur með 20 stig og líklegt að um spennandi viðureign yrði að ræða sem svo varð sannarlega raunin. Skallagrímur byrjaði betur í leiknum, komst í 11:2 en um miðjan fyrsta leikhluta munaði aðeins einu stigi Skallagrími í vil, staðan 15:14. Spennan hélt áfram næstu mínútur og Davíð Guðmundsson átti síðasta orðið fyrir Skallana í fjórðungnum með þriggja stiga körfu áður en Oscar Jorgensen minnkaði muninn í fjögur stig, staðan 32:28. Skallagrímur hafði undirtökin fyrstu mínúturnar í öðrum leikhluta og náði tíu stiga forystu eftir rúman þriggja mínútna leik, 44:34. En gestirnir komu sér inn í leikinn á ný með átta stigum í röð og komust yfir 49:50 þegar tæpar tvær mínútur voru til hálfleiks. Heimamenn áttu þó síðasta orðið og síðustu sex stig hálfleiksins, hálfleikstölur 55:50 Skallagrími í hag.

Skallagrímur vann Sindra með flautukörfu - MYNDBAND - Skessuhorn