
Gísli Laxdal í leik gegn KA síðasta sumar. Ljósm. Lárus Árni Wöhler
Skagamenn unnu Vestra í markaleik
ÍA og Vestri mættust í fyrstu umferð í riðli 1 í A deild í Lengjubikar karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Liðin leika bæði í Lengjudeildinni í sumar og miklar breytingar hafa átt sér stað í leikmannahópum liðanna frá síðasta tímabili. Vestri komst yfir í leiknum á 13. mínútu með marki frá Benedikt V. Warén sem lék með ÍA síðasta sumar og átta mínútum síðar bætti Vladimir Tufegdzic öðru marki við fyrir Vestra. Til að bæta gráu ofan á svart skoraði Benedikt þriðja mark gestanna rétt fyrir hálfleik og staðan óvænt og alls ekki góð fyrir heimamenn, 0-3 fyrir Vestra.