
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 26. janúar sl. lagði ungmennaráð Borgarbyggðar fram tillögu að sveitarstjórnarfundi unga fólksins. Hugmyndin var samþykkt og tímasetning ákveðin fyrir fyrsta fund. ,,Byggðarráð samþykkir hugmynd ungmennaráðs um að haldinn verði sveitarstjórnarfundur unga fólksins fimmtudaginn 16. febrúar kl. 16.00. Fundinum verður streymt eins og venja er með sveitarstjórnarfundi,“ segir í fundargerð.Lesa meira








