
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Arnar Má Ólafsson til að gegna embætti ferðamálastjóra. Arnar Már hefur áratuga rekstrar- og stjórnunarreynslu í ferðaþjónustu og starfaði síðast sem leiðtogi markaðsmála hjá Icelandia. Hann er með meistaragráðu á sviði alþjóðamarkaðs- og ferðamálafræða frá Université de Savoie. Áður starfaði hann um árabil hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og…Lesa meira








