Fréttir

true

Björgvin ráðinn verkefnisstjóri Sundabrautar

Björgvin Þorsteinsson hefur verið ráðinn til Vegagerðarinnar sem verkefnisstjóri Sundabrautar. Mun hann vinna fyrir verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar sem skipuð var af Sigurði Inga Jóhannssyni, innviðaráðherra, á síðasta ári. Næstu skref undirbúnings Sundabrautar eru vinna við mat á umhverfisáhrifum, frekari útfærsla valkosta, samráð við hagsmunaaðila og undirbúningur nauðsynlegra breytinga á skipulagsáætlunum með það að markmiði…Lesa meira

true

Þrjú sveitarfélög á Vesturlandi innleiða Borgað þegar hent er kerfi

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur farið af stað með innleiðingarverkefni þar sem markmiðið er innleiðing á kerfi innheimtu vegna meðhöndlunar úrgangs sem nefnist „Borgað þegar hent er kerfi“. Verkefnið er leitt af Sambandi íslenskra sveitarfélaga en auk þess eru Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Húsnæðis og mannvirkjastofnun aðilar að því. Þetta kemur fram á heimasíðu Sambands…Lesa meira

true

Tinna Ósk er Skagamaður ársins 2022

Tinna Ósk Grímarsdóttir var í gærkvöldi kjörin Skagamaður ársins 2022. Kjörinu var lýst á Þorrablóti Skagamanna sem fram fór í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Tinna Ósk hefur á undanförnum árum komið miklu í verk og verið öðrum sönn fyrirmynd. Hún er 35 ára fyrirtækiseigandi, grafískur miðlari að mennt, eiginkona og tveggja barna móðir. Hún hefur á…Lesa meira

true

Varðskipið Freyja lagðist að bryggju í Grundarfirði

Nýjasta varðskip Landhelgisgæslu Íslands, Freyja, kom til hafnar í Grundarfirði í gær, laugardag. Þá var öldudufl sett í land sem áhöfnin skipti um hjá Flatey á dögunum. Þetta var í fyrsta skipti sem varðskipið Freyja hefur viðkomu á Snæfellsnesi frá því skipið var tekið í notkun í nóvember 2021. Skipið lét svo úr höfn um…Lesa meira

true

Vestan éljagangur og viðvaranir í gildi

Veðurstofan er með í gildi í dag gular og appelsínugular viðvaranir vegna veðurs á öllu landinu. Á suðvesturhorni landsins er appelsínugul viðvörun. Á svæðinu við Faxaflóa breytist hún í gult um nónbil. Þar verður suðvestan og vestan 18-28 m/sek með dimmum éljum og mjög slæmu skyggni þegar éljabakkarnir ganga yfir. Hvassast syðst. Líkur á samgöngutruflunum…Lesa meira

true

Aðhlynning, umhyggja og virðing eru grunngildin í starfi

Rætt við Jóhönnu Marín Björnsdóttur forstöðumann hjúkrunarsviðs á Brákarhlíð Jóhanna Marín Björnsdóttir hefur starfað á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð frá grunnskólaaldri og gengið þar í flest störf. Hún tók við starfi forstöðumanns hjúkrunarsviðs í byrjun árs, ásamt því að hún tók óvænt sæti í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Jóhanna Marín er Borgnesingur í húð og hár og…Lesa meira

true

Uppbyggingarsjóður úthlutar 48 milljónum

Úthlutunarhátíð Uppbyggingasjóðs Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi SSV var haldin á Breið Þróunarsetri í dag, föstudag. Heildarúthlutun styrkja var 48.080.000 krónur og var þeim úthlutað á 81 verkefni en alls bárust 121 umsókn í þremur flokkum: Atvinnu- og nýsköpunarstyrkir, Menningarstyrkir og Stofn- og rekstrarstyrkir menningar. Lista yfir úthlutanir má sjá hér neðar í fréttinni. ATVINNU- OG…Lesa meira

true

Gul viðvörun í gildi vegna flóðahættu

Fram til morgun er gul viðvörun Veðurstofunnar í gildi um allt landið. Það verður sunnan 10-18 m/s og rigning, stundum talvert mikil. Hiti frá 5 til 9 stig. „Búast má við talsverðu afrennsli vegna úrkomu og snjóbráðnunar og vexti í ám og lækjum. Ísilagðar ár geta rutt sig og fólk er hvatt til að sýna…Lesa meira

true

Þorramaturinn kominn í kæliborðið hjá Einari

Margir landsmenn fagna í dag bóndadeginum, upphafi Þorra. Gera þá vel við sig í mat og drykk. Í Verslun Einars Ólafssonar á Akranesi er fólk við öllu búið. Þar er líkt og undanfarin ár hægt að kaupa úr kæliborðinu þorramat í því magni sem hentar hverjum og einum. Slík kæliborð hafa fyrir margt löngu heyrt…Lesa meira

true

Baader fyrirtækin þétta raðirnar

Á dögunum tók fyrirtækið Skaginn 3X ehf. yfir allan rekstur Þorgeirs & Ellerts ehf. og Skagans ehf. á Akranesi auk 3X Technology ehf. á Ísafirði. Öll eru fyrirtækin að fullu í eigu Baader í Þýskalandi sem einnig á og rekur Baader Ísland ehf. í Kópavogi. Sigsteinn Grétarsson var á haustdögum ráðinn forstjóri allra þessara fyrirtækja.…Lesa meira