Fréttir

true

Þrjú sveitarfélög á Vesturlandi innleiða Borgað þegar hent er kerfi

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur farið af stað með innleiðingarverkefni þar sem markmiðið er innleiðing á kerfi innheimtu vegna meðhöndlunar úrgangs sem nefnist „Borgað þegar hent er kerfi“. Verkefnið er leitt af Sambandi íslenskra sveitarfélaga en auk þess eru Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Húsnæðis og mannvirkjastofnun aðilar að því. Þetta kemur fram á heimasíðu Sambands…Lesa meira

true

Tinna Ósk er Skagamaður ársins 2022

Tinna Ósk Grímarsdóttir var í gærkvöldi kjörin Skagamaður ársins 2022. Kjörinu var lýst á Þorrablóti Skagamanna sem fram fór í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Tinna Ósk hefur á undanförnum árum komið miklu í verk og verið öðrum sönn fyrirmynd. Hún er 35 ára fyrirtækiseigandi, grafískur miðlari að mennt, eiginkona og tveggja barna móðir. Hún hefur á…Lesa meira

true

Varðskipið Freyja lagðist að bryggju í Grundarfirði

Nýjasta varðskip Landhelgisgæslu Íslands, Freyja, kom til hafnar í Grundarfirði í gær, laugardag. Þá var öldudufl sett í land sem áhöfnin skipti um hjá Flatey á dögunum. Þetta var í fyrsta skipti sem varðskipið Freyja hefur viðkomu á Snæfellsnesi frá því skipið var tekið í notkun í nóvember 2021. Skipið lét svo úr höfn um…Lesa meira

true

Vestan éljagangur og viðvaranir í gildi

Veðurstofan er með í gildi í dag gular og appelsínugular viðvaranir vegna veðurs á öllu landinu. Á suðvesturhorni landsins er appelsínugul viðvörun. Á svæðinu við Faxaflóa breytist hún í gult um nónbil. Þar verður suðvestan og vestan 18-28 m/sek með dimmum éljum og mjög slæmu skyggni þegar éljabakkarnir ganga yfir. Hvassast syðst. Líkur á samgöngutruflunum…Lesa meira

true

Aðhlynning, umhyggja og virðing eru grunngildin í starfi

Rætt við Jóhönnu Marín Björnsdóttur forstöðumann hjúkrunarsviðs á Brákarhlíð Jóhanna Marín Björnsdóttir hefur starfað á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð frá grunnskólaaldri og gengið þar í flest störf. Hún tók við starfi forstöðumanns hjúkrunarsviðs í byrjun árs, ásamt því að hún tók óvænt sæti í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Jóhanna Marín er Borgnesingur í húð og hár og…Lesa meira

true

Uppbyggingarsjóður úthlutar 48 milljónum

Úthlutunarhátíð Uppbyggingasjóðs Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi SSV var haldin á Breið Þróunarsetri í dag, föstudag. Heildarúthlutun styrkja var 48.080.000 krónur og var þeim úthlutað á 81 verkefni en alls bárust 121 umsókn í þremur flokkum: Atvinnu- og nýsköpunarstyrkir, Menningarstyrkir og Stofn- og rekstrarstyrkir menningar. Lista yfir úthlutanir má sjá hér neðar í fréttinni. ATVINNU- OG…Lesa meira

true

Gul viðvörun í gildi vegna flóðahættu

Fram til morgun er gul viðvörun Veðurstofunnar í gildi um allt landið. Það verður sunnan 10-18 m/s og rigning, stundum talvert mikil. Hiti frá 5 til 9 stig. „Búast má við talsverðu afrennsli vegna úrkomu og snjóbráðnunar og vexti í ám og lækjum. Ísilagðar ár geta rutt sig og fólk er hvatt til að sýna…Lesa meira

true

Þorramaturinn kominn í kæliborðið hjá Einari

Margir landsmenn fagna í dag bóndadeginum, upphafi Þorra. Gera þá vel við sig í mat og drykk. Í Verslun Einars Ólafssonar á Akranesi er fólk við öllu búið. Þar er líkt og undanfarin ár hægt að kaupa úr kæliborðinu þorramat í því magni sem hentar hverjum og einum. Slík kæliborð hafa fyrir margt löngu heyrt…Lesa meira

true

Baader fyrirtækin þétta raðirnar

Á dögunum tók fyrirtækið Skaginn 3X ehf. yfir allan rekstur Þorgeirs & Ellerts ehf. og Skagans ehf. á Akranesi auk 3X Technology ehf. á Ísafirði. Öll eru fyrirtækin að fullu í eigu Baader í Þýskalandi sem einnig á og rekur Baader Ísland ehf. í Kópavogi. Sigsteinn Grétarsson var á haustdögum ráðinn forstjóri allra þessara fyrirtækja.…Lesa meira

true

Ruslagámar vaktaðir og lokað seinni partinn vegna ásóknar nemenda

Í bréfi sem Elsa Lára Arnardóttir, aðstoðarskólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi, sendi foreldrum í morgun kemur fram að undanfarna daga hafi starfsmenn skólans orðið vör við að nemendur hafi reynt að komast inn í ruslagámana við spítalann en Brekkubæjarskóli og HVE deila sömu ruslagámum sem eru staðsettir á milli skólans og spítalans. Nemendur hafa farið inn…Lesa meira