
Vegna veðurs hefur ekki mikið gefið til sjósóknar frá Snæfellsnesi í þessari viku. Áfram er svo spáð lægðagangi. En í gær, fimmtudag, komust stærri bátar þó á sjó. Dragnótarbátarnir voru að fá ágætis afla og línubátur Stakkhamar landaði 9,3 tonnum í Rifi. Dragnótarbátarnir lönduðu frá þremur og upp í ellefu tonnum.Lesa meira








