
Kór Keflavíkurkirkju ásamt hljómsveit í Akraneskirkju. Ljósm. vaks
Vel heppnuð U2 messa í Akraneskirkju
Kór Keflavíkurkirkju ásamt hljómsveit var með tónleika í Akraneskirkju á laugardaginn þar sem flutt voru lög írsku hljómsveitarinnar U2 og voru allir textar sungnir á íslensku. Textarnir eru eftir fjóra meðlimi kórsins og á Ómar Ólafsson fimm þeirra, Sólmundur Friðriksson samdi fjóra texta og kórstjórinn Arnór B. Vilbergsson og Freydís Kneif Kolbeinsdóttir sömdu bæði einn texta. Ómar tók að sér á tónleikunum að útskýra innihald textanna sem voru flestir í trúarlegum stíl og ekki annað hægt að segja það að þeir eru vel ortir og pössuðu ágætlega við lögin.