Fréttir

true

Jákvæðari rekstrarniðurstaða en reiknað hafði verið með

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lagður fram samanburður á rekstri sveitarfélagsins á fyrri hluta ársins, janúar til júní, við fjárhagsáætlun. Samkvæmt áætluninni var gert ráð fyrir að gjöld umfram tekjur væru 75 m.kr. á tímabilinu, en rauntölur sýna að gjöldin eru 11 milljónum króna meiri en tekjurnar. Launakostnaður á tímabilinu er um…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá í boði á Hvanneyrarhátíð 12. ágúst

Hin fjölskylduvæna Hvanneyrarhátíð verður haldin laugardaginn 12. ágúst nk. frá klukkan 13:30 til 17 á Hvanneyri. Þennan dag taka heimamenn vel á móti gestum og gangandi með fjölbreyttri dagskrá. Upphaf hátíðarinnar má rekja til Safnadagsins sem Landbúnaðarsafn Íslands tók þátt í og bauð þá velunnurum sem og gömlum nemendum að koma á Hvanneyri og kíkja…Lesa meira

true

Aðsetur Landmælinga Íslands flutt um set

Landmælingar Íslands hafa nú formlega flutt aðsetur sitt frá Stillholti 16-18 á Akranesi þar sem stofnunin hefur verið til húsa frá 1. janúar árið 1999 og er nýtt aðsetur stofnunarinnar að Smiðjuvöllum 28. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar, www.lmi.is. Í nýjum heimkynnum hefur verið innréttað vel búið rými fyrir starfsemina og byggist hönnunin á…Lesa meira

true

Úr safni: „Ég er háður því að vera hér“

Viðtaið birtist fyrst í jólablaði Skessuhorns árið 2022. Rætt við Magnús Tómasson myndlistarmann á Ökrum Magnús Tómasson er höfundur þekktra listaverka eins og Þotuhreiðursins við Leifsstöð og Minnismerkisins um óþekkta embættismanninn við Tjörnina. Hann er borinn og barnfæddur í Reykjavík en hefur búið á Ökrum á Mýrum í áratugi og vill hvergi fara. Blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Skrifstofan lokuð til 8. ágúst

Starfsfólk Skessuhorns er í sumarleyfi frá miðvikudeginum 2. ágúst til og með þriðjudagsins 8. ágúst. Skrifstofan verður lokuð þessa daga. Það kemur því EKKI út blað miðvikudaginn 9. ágúst. Fréttavakt verður á vefnum og hægt að senda tilkynningar til birtingar þar á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is. Næsta blað kemur út 16. ágúst. Mynd: Veggmynd eftir Baska við…Lesa meira

true

Vinnuslys við slátt

Á þriðja tímanum í gær, laugardag, var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til vegna vinnuslyss í Dölum. Slysið hafði orðið við heyskap og voru tildrög þess með þeim hætti að blað losnaði úr sláttuvél og skaust í fót ökumanns. Fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá því að samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi hafi viðkomandi slasast töluvert á fæti,…Lesa meira

true

Vestlendingar á landsmóti

Unglingalandsmót UMFÍ er nú haldið á Sauðárkróki. Mótin hafa verið haldin allt frá árinu 1992 og geta öll ungmenni á aldrinum 11–18 ára geta skráð sig til leiks. Fjölmargar og fjölbreyttar greinar eru í boði og má sem dæmi nefna badminton, glímu, bogfimi, pílukast og skák auk þess sem keppt er í upplestri. Þetta er…Lesa meira

true

Björgunarsveitir bæta við léttari farartækjum 

Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi er nýbúin að fá í tækjaflota sinn tvö ný fjórhjól af gerðinni CF Moto. Þau koma í staðinn fyrir tvö eldri fjórhjól sem voru seld í vor. Hjólin voru keypt hjá Nítró sporti ehf og tveir félagar úr Brák sóttu þau fyrir stuttu. Þessa dagana er verið að undirbúa þau fyrir…Lesa meira

true

Hefur aldrei sótt um vinnu en alltaf haft nóg að gera

Viðar Guðmundsson kórstjóri, útfararstjóri og bóndi heimsóttur að Miðhúsum á Ströndum Viðar Guðmundsson býr á bænum Miðhúsum á Ströndum ásamt Barböru Ósk Guðbjartsdóttur eiginkonu sinni sem alin er upp í Dölum. Saman eiga þau Viðar og Barbara fimm börn, fósturdótturina Andreu Messíönu 28 ára, Guðbjart Þór 21 árs, Unni Ernu 17 ára, Þorstein Óla 15…Lesa meira

true

Bárður Snæfellsás og veðrið um helgina

Sagan um Bárð Snæfellsás er mörgum kunn. Hann var sagður sonur Mjallar Snæsdóttur og Dumbs konungs sem var kominn af risakyni í föðurætt, en tröllum í móðurætt. Þar af leiðandi var Bárður risavaxinn. Hann var talinn hollvættur í Snæfellskökli og gat haft stjórn á veðri til að villa um fyrir mönnum ef hann vildi fá…Lesa meira