Fréttir

true

Auka greiðsluþátttöku vegna tannréttinga

Heilbrigðisráðherra og tannréttingasérfræðingar hafa undirritað samning um tannréttingar. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur er gerður um þjónustu tannréttingasérfræðinga. Samningurinn felur í sér að greiðsluþátttöku ríkisins í tannréttingum verður aukin frá og með 1. september næstkomandi og tekur til tannréttingaþjónustu á eigin stofum tannréttingasérfræðinga fyrir sjúkratryggða einstaklinga. Undir samninginn falla bæði almennar tannréttingar…Lesa meira

true

Ráðin í nýtt starf verkefnastjóra fjölskyldumála

Fyrr í sumar auglýsti Dalabyggð starf verkefnastjóra fjölskyldumála hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða nýtt starf þar sem helstu verkefni verða tengd málefnum félagsþjónustu, fræðslumála, barnavernd og störfum með fastanefndum Dalabyggðar. Þrjár umsóknir bárust um starfið. Á vef Dalabyggðar er sagt frá því að Jóna Björg Guðmundsdóttir hafi verið ráðin og byrjar hún störf 14.…Lesa meira

true

Rákahöfrung rak á fjöruna við Bjarteyjarsand

Rákahöfrung rak á fjöru neðan við bæinn Bjarteyjarsand á Hvalfjarðarströnd á miðvikudaginn. Frá því er greint á FB síðu bæjarins að um hafi verið að ræða tveggja metra langt karldýr. Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar hafa nú tekið hræið til frekari rannsókna. „Þrátt fyrir að vera meðal útbreiddustu höfrungategunda á jörðinni, er afar sjaldgæft að finna rákahöfrunga (striped…Lesa meira

true

Í Ólafsdal er hægt að fræðast um 1000 ára sögu svæðis

Fornleifauppgröftur á vegum Fornleifastofnunar Íslands mun í ágúst halda áfram í Ólafsdal við Gilsfjörð, sjötta sumarið í röð. Rannsóknirnar fara að þessu sinni fram í fyrri hluta mánaðarins, frá 8.-19. ágúst. Þar eru sífellt að koma í ljós nýjar byggingar frá landnámstíð, aðeins um einum kílómetra sunnan við gamla skólahúsið. Á vef Fornleifastofnunar kemur fram…Lesa meira

true

Jaðarsbakkalaug lokað vegna viðhalds í næstu viku

Vegna árlegs viðhalds verður sundlaugin á Jaðarsbökkum á Akranesi lokuð frá og með þriðjudeginum 1. ágúst til föstudagsins 18. ágúst. Á meðan á viðgerðum stendur verður opið í innisundlauginni Bjarnalaug við Laugarbraut frá klukkan 10 til 18 alla daga vikunnar. Þá verður Guðlaug á Langasandi opin frá klukkan 12 til 20 virka daga og frá…Lesa meira

true

Brúarframkvæmdir á Skógarströnd vel á veg komnar

Unnið er við lagningu nýs Snæfellsnesvegar (54) um Skógarströnd á um 5,4 km kafla milli Ketilsstaða og Gunnarsstaða. Það er Borgarverk ehf. sem er verktakinn. Þá er nánast búið að byggja tvær brýr á þessari leið, yfir árnar Dunká og Skraumu. Það eru fyrirtækin Húsheild og Hyrna sem eru undirverktakar Borgarverks í brúarvinnunni. Nýja brúin…Lesa meira

true

Hús af öllum gerðum á Skaganum – Myndasyrpa

Blaðamaður Skessuhorns skellti sér á rúntinn í gær á Akranesi og var ætlunin að setja sig í stellingar og taka myndir af húsum og framkvæmdum af ýmsum toga. Það gekk bara vel enda fullt í gangi af framkvæmdum víðs vegar í bænum og margt að skoða. Landslagið breytist visssulega í þéttbýlum bæ þegar nýbyggingar rísa,…Lesa meira

true

Tveir fóru holu í höggi í vikunni hjá Golfklúbbnum Leyni

Síðasta þriðjudag gerði hinn 14 ára Arnar Gunnarsson sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 18. braut á Garðavelli á Akranesi. Arnar var að spila í liðakeppni Blikkksmiðju Guðmundar þegar hann sló draumahöggið sitt en til þess notaði hann átta járn í verkið. Tveimur dögum áður fór hinn 90 ára gamli kylfingur Guðmundur…Lesa meira

true

Opið fyrir skráningu á unglingalandsmót UMFÍ

Til mánaðamóta verður opið fyrir skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður á Sauðárkróki að þessu sinni. „Nú er aldeilis farið að styttast í Unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina. Mótið verður afar fjölbreytt og skemmtilegt, 18 íþróttagreinar í boði og gríðarlegur fjöldi af kynningum á mörgu skemmtilegu sem ekki þarf að skrá sig í. Mikilvægt er…Lesa meira

true

Reykholtshátíð hefst á morgun

Reykholtshátíð verður haldin um komandi helgi, dagana 28.-30. júlí. Dagskrá hátíðarinnar samanstendur af fernum tónleikum sem bjóða upp á kammerverk, kórverk og einsöngslög. Einnig er fyrirlestur á vegum Snorrastofu fastur liður á dagskrá hátíðarinnar ásamt hátíðarmessu sem fara mun fram sunnudaginn 30. júlí kl. 14. Fyrirlesari þetta árið er Friðrik Erlingsson, skáld og handritshöfundur, en…Lesa meira