Fréttir

true

17. júní hér og þar á Vesturlandi – MYNDASYRPA

Hátíðarhöld fóru fram víða um landið þegar þjóðhátíðardag Íslendinga bar að garði laugardaginn 17. júní. Þar gáfu Vestlendingar ekkert eftir en veglega dagskrá mátti finna í flestum þéttbýliskjörnum landshlutans. Blaðamenn Skessuhorns voru á ferli og mynduðu hátíðarhöldin víða um landshlutann.Lesa meira

true

Fish and Chips fimm ár í röð í Stykkishólmi

Matarvagninn Fish & Chips er staðsettur við höfnina í Stykkishólmi og er þetta fimmta árið í röð sem hann er starfræktur á þessum stað. Þar ræður ríkjum Guðmundur Rúnar Hlaðgerðarson og hans hjálparkokkar eru þau Alexía og Marel. Blaðamaður Skessuhorns kom við hjá þeim í síðustu viku og ákvað að smakka hjá þeim fisk og…Lesa meira

true

Skar út listaverkalax úr tré

Vagn Ingólfsson frá Ólafsvík hefur undanfarin ár unnið listaverk úr ýmiskonar við og síðasta verk hans er þegar hann tók áskorun um hvort hann treysti sér í að skera út 20 plús punda lax. „Mér fannst þessi áskorun spennandi og ögrandi verkefni og tók þessari áskorun,“ segir Vagn og bætir við að þetta hafi verið…Lesa meira

true

Buslað á bryggjunni

Þegar blaðamaður Skessuhorns var á göngu við höfnina í Stykkishólmi í liðinni viku sá hann hóp af krökkum vera að hoppa af bryggjunni ofan í sjóinn. Þarna voru á ferð krakkar á aldrinum 10-14 ára sem voru á siglinganámskeiði og virtust skemmta sér konunglega. Að sögn Ágústu Arnþórsdóttur leiðbeinanda á námskeiðinu sem Siglingadeild Snæfells heldur…Lesa meira

true

Ansi stutt á fiskimiðin

Enn fiskast vel á strandveiðarnar og á mánudaginn voru flestir bátar í Snæfellsbæ með dagskammtinn sinn. Að vísu er nú lengra að sækja á miðin til þess að fá afla en það er árvisst. Lengra  er að sækja en í maímánuði þar sem aðeins þarf að fara rétt út fyrir hafnarkjaftinn í mok aflabrögð. Börkur…Lesa meira

true

Endurmála regnbogagötuna

Starfsfólk Snæfellsbæjar stóð í ströngu við að endurmála regnbogagötuna, Kirkjutún, í Ólafsvík í gær. Gatan var fyrst máluð í fyrrasumar í tilefni Hinseginhátíðar Vesturlands sem haldin var í Ólafsvík það árið. „Regnboginn í Kirkjutúninu hefur mælst vel fyrir hjá heimamönnum og gestum,“ segir á Facebook-síðu Snæfellsbæjar, þar sem þessar myndir voru einnig birtar.Lesa meira

true

Á æskuslóðum Helgu Brögu á Akranesi í dag

Tökur á þáttaröðinni Á æskuslóðum hófust í dag þegar þau Viktoría Hermannsdóttir, Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson fylgdu Helgu Brögu Jónsdóttur til Akraness ásamt tveimur tökumönnum. Þau hófu tökur í hádeginu á Akratorgi og munu fara um æskuslóðir Helgu í dag, m.a. í Bíóhöllina þar sem Helga steig sín fyrstu skref sem leikkona í hlutverki…Lesa meira

true

Veiðar á langreyðum stöðvaðar

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að stöðva tímabundið veiðar á langreyðum fram til 31. ágúst nk. Eftirlitsskýrsla Matvælastofnunar um velferð hvala við veiðar á langreyðum barst ráðuneytinu í maí 2023 en niðurstaða skýrslunnar er að aflífun dýranna hafi tekið of langan tíma út frá meginmarkmiðum laga um velferð dýra. Matvælastofnun fól í kjölfarið fagráði…Lesa meira

true

Skallagrímur úr leik eftir framlengingu og vító á móti KFA

Skallagrímur sem er í neðri hlutanum í 4. deild og KFA sem er í toppbaráttu í 2. deild mættust í fyrstu umferð í bikarkeppni neðri deilda í knattspyrnu, Fótbolti.net.bikarnum í gærkvöldi og var leikurinn á Skallagrímsvelli. Gestirnir komust yfir á 21. mínútu með marki frá Heiðari Snæ Ragnarssyni en Alejandro Serralvo jafnaði fyrir Skallagrím með…Lesa meira

true

Gunnhildur Lind er Listamanneskja Borgarbyggðar

Ljósmyndarinn Gunnhildur Lind Hansdóttir tók við titlinum Listamanneskja Borgarbyggðar á hátíðarhöldum í Skallagrímsgarði laugardaginn síðasta, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Var það sveitarstjórinn Stefán Broddi Guðjónsson sem veitti Gunnhildi viðurkenninguna. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Gunnhildar sem sagðist mjög hissa yfir nafnbótinni. ,,Hér í kring er svo rosalega mikið af frambærilegu listafólki, þegar ég hugsa um…Lesa meira