Buslað á bryggjunni

Þegar blaðamaður Skessuhorns var á göngu við höfnina í Stykkishólmi í liðinni viku sá hann hóp af krökkum vera að hoppa af bryggjunni ofan í sjóinn. Þarna voru á ferð krakkar á aldrinum 10-14 ára sem voru á siglinganámskeiði og virtust skemmta sér konunglega. Að sögn Ágústu Arnþórsdóttur leiðbeinanda á námskeiðinu sem Siglingadeild Snæfells heldur utan um er það í fjóra daga frá mánudegi til fimmtudags, fyrir og eftir hádegi þrjá tíma í senn. Þar er verið að kenna krökkunum að sigla á seglskútum og kajökum, farið á sjóbretti og stokkið í sjóinn. Ágústa segir að krökkunum finnist þetta mjög gaman, þau eru mjög áhugasöm og ekki verra þegar veðrið sé svona gott. Allt hefur gengið mjög vel á námskeiðinu og eru krakkarnir búnir að læra helling og skemmta sér í leiðinni.

vaks

Buslað á bryggjunni - Skessuhorn