
Þjóðhátíðardagur Íslendinga er í dag, 17. júní. Fæðingardags Jóns Sigurðssonar var fyrst minnst með opinberum samkomum árið 1907 en fyrst var haldinn almennur þjóðminningardagur á aldarafmæli Jóns 17. júní árið 1911. Það var svo árið 1944 sem 17. júní var valinn stofndagur lýðveldisins. Síðan hefur hann verið opinber þjóðhátíðardagur og almennur frídagur hér á landi.…Lesa meira








