Skagakonur hafa tapað tveimur leikjum í röð en eiga auðveldari leiki framundan ef miðað er við stigatöfluna gegn KH og Smára. Ljósm. vaks

Skagakonur með tap á móti ÍH

ÍA og ÍH mættust í toppslag í 2. deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í Akraneshöllinni. Fyrri hálfleikur hófst fjörlega því strax á fyrstu mínútu fékk Thelma Karen Pálmadóttir leikmaður ÍH gott færi eftir stungusendingu en var of lengi að athafna sig og Salka Hrafns Elvarsdóttir í marki ÍA varði skotið vel. Skömmu síðar var Thelma Karen aftur á ferðinni og að þessu sinni fór skot hennar í innanverða stöngina og upp með línunni uns Salka greip boltann og bjargaði marki. Eftir þetta var ekki mikið um hættuleg færi í fyrri hálfleik. Bæði lið áttu í smá erfiðleikum með að halda boltanum innan liðsins, of mikið var um kýlingar og ljóst að smá spenna var í leikmönnum liðanna vegna mikilvægi leiksins. Unnur Ýr Haraldsdóttir fékk þó dauðafæri eftir þunga sókn á 18. mínútu þegar hún fékk boltann í teignum en skaut yfir markið. Ekkert fleira markvert gerðist fyrir utan hörku baráttu og mikinn kraft í báðum liðum, staðan markalaus í hálfleik, 0-0.

Gestirnir úr Hafnarfirði komust síðan yfir eftir tæpar tíu mínútur í seinni hálfleik. Margrét Helga Ólafsdóttir fékk þá boltann hægra megin fyrir utan teig, lét vaða á markið og endaði boltinn í fjærhorninu án þess að Salka ætti einhverja möguleika á að verja. Eftir markið þyngdist sókn ÍA og þær settu meiri pressu á vörn ÍH en gekk illa eins og áður í leiknum að skapa sér færi. Þær fengu þó nokkrar aukaspyrnur á góðum stað en nýttu þær ekki. Vörn gestanna var geysisterk og þá voru þær stórhættulegar í sínum skyndisóknum. Það var síðan úr einni þannig í uppbótatíma sem þær gerðu út um leikinn. Hildur Katrín Snorradóttir átti þá góðan sprett upp völlinn frá miðju vallarins og skaut að marki með vinstri fæti fyrir utan teig undir markmann ÍA og í netið. Lokatölur 0-2 í þessum hörkuleik fyrir ÍH og með sigrinum komust þær í annað sætið.

Deildin er ansi jöfn og spennandi en í 1. og 2. sæti eru lið Hauka og ÍH með 15 stig, ÍR í þriðja sæti með 14 stig og ÍA í því fjórða með 13 stig. Öll hafa þessi lið leikið sjö leiki en næst kemur lið Fjölnis í fimmta sæti með tólf stig eftir sex leiki eins og Völsungur sem er með tíu stig í sjötta sætinu. Neðst eru lið KH, Smára og Sindra með aðeins eitt stig eftir mismarga leiki. Næsti leikur ÍA er á móti botnliði KH föstudaginn 23. júní á Valsvelli við Hlíðarenda og hefst klukkan 18.

Skagakonur með tap á móti ÍH - Skessuhorn