Fréttir

true

Göngufólki á Hafnarfjalli komið til bjargar

Um klukkan 19:30 í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð björgunarsveita á sunnanverðu Vesturlandi vegna tveggja göngumanna á Hafnarfjalli. Þeir voru orðnir kaldir og treystu sér ekki lengra á fjallinu. Björgunarsveitir frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði fóru til aðstoðar og gengu upp Hafnarfjall norðanvert. Nokkurn tíma tók að komast að fólkinu, en svartaþoka var á leitarsvæðinu.…Lesa meira

true

Endurunnið plast reynist sambærilegt að gæðum

Pólska fyrirtækið Folgos framleiðir plast sem sérhannað er sem heyrúlluplast. Plastið er það eina í heiminum sem að fullu er unnið úr endurunnu hráefni. Sumarið 2022 flutti íslenska fyrirtækið Silfraberg Umbúðalausnir ehf. inn lítið magn af umræddu plasti og dreifði meðal bænda í samstarfi við Fóðurblönduna og Lífland. „Markmiðið var að prófa þessa gerð plasts…Lesa meira

true

Blóðbankabíllinn verður á Snæfellsnesi í næstu viku

Í næstu viku mun Blóðbankabíllinn verða á ferðinni á Snæfellsnesi og eru íbúar hvattir til að nýta tækifærið og gefa blóð, til lífgjafar. Bíllinn verður við Kjörbúðina í Grundarfirði þriðjudaginn 23. maí kl. 12-17. Miðvikudaginn 24. maí verður hann við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi kl. 8:30-12 og sama dag við Sjoppuna í Ólafsvík frá klukkan 14:30-18.Lesa meira

true

Setja upp þrjár grenndarstöðvar í Stykkishólmi

Fyrirhugað er að setja upp grenndarstöðvar fyrir málm, gler og textíl í Stykkishólmi á næstu vikum. Er sú framkvæmd svar við þeim skyldum sem frumvarp til breytingar á lögum (nr. 55/2003) sem tók gildi um síðustu áramót setur á sveitarfélög til sérstakrar söfnunar á fleiri úrgangstegundum en verið hefur. Lagabreytingin skyldar sveitarfélög til þess að…Lesa meira

true

Átta útskrifast úr leiðtoganáminu Forysta til framtíðar

Síðastliðinn föstudag útskrifuðust átta nemendur úr leiðtoganáminu Forysta til framtíðar, frá Háskólanum á Bifröst. Námið er samstarfsvettvangur skólans og Samkaupa og er vottað 12ECT eininga háskólanám. Markmið þess er að móta öflugri leiðtoga til framtíðar og byggja upp hæfni og þekkingu. „Þannig fær starfsfólk faglega menntun og tækifæri til að þróast sem leiðtogar og takast…Lesa meira

true

Hjóladagur í Brekkó

Hjóladagurinn var haldinn hjá nemendum á yngsta stigi Brekkubæjarskóla á Akranesi í góða veðrinu fimmtudaginn í síðustu viku. Nemendur í 1.- 4. bekk mættu á hjólum og æfðu sig að hjóla eftir hjólabraut sem sett var upp á skólalóðinni. Þar gátu þau æft sikk sakk, að halda jafnvægi á hjóli, hjóla undir og færa hluti…Lesa meira

true

Vel gerð vegglistaverk á Hellissandi – MYNDASYRPA

Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni á Snæfellsnesi í síðustu viku og kom við á Hellissandi. Þar kom hann auga á fjölda vegglistaverka sem eru víst yfir 30 talsins og eru á gamla frystihúsinu í bænum og nokkrum öðrum byggingum. Um er að ræða verkefni sem Kári Viðarsson leikari og eigandi Frystiklefans á Rifi stóð fyrir…Lesa meira

true

Nemendum LbhÍ hefur fjölgað á öllum námsstigum

Landbúnaðarháskóli Íslands hélt ársfund sinn í gær í Reykjavík. Yfirskrift hans var „Framtíð íslensks landbúnaðar – tækifæri og áskoranir.“ Tveir ráðherrar ávörpuðu fundinn, þær Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Svandís Svavarsdóttir auk þess sem rektor Lífvísindaháskólans í Varsjá í Póllandi flutti erindi og Björgvin Þór, stærsti kornbóndi landsins, sagði frá sinni starfsemi. „Landbúnaðarháskóli Íslands er á…Lesa meira

true

Erlendir ríkisborgarar nú 17,5% landsmanna

Alls voru 68.419 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 1. maí síðastliðinn og fjölgaði þeim um 3.834 einstaklinga frá 1. desember 2022, eða um 5,9%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 611 einstaklinga eða um 0,2%. Erlendir ríkisborgarar eru nú 17,47% þeirra sem hér búa.Lesa meira

true

Leigjendasamtökin vilja kaupa 1700 íbúðir af Heimstaden

Leigjendasamtökin hafa óskað eftir viðræðum við stjórn Heimstaden um kaup á 1700 íbúðum félagsins svo þau geti áfram verið í útleigu og leigjendur þeirra endi ekki á götunni. Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að jafnframt óska þau eftir viðræðum við fjármálaráðuneytið og stjórn Íbúðalánasjóðs um fjármögnun kaupanna. „Jafnframt óska Leigjendasamtökin eftir viðræðum við stærstu…Lesa meira