Hjóladagur í Brekkó

Hjóladagurinn var haldinn hjá nemendum á yngsta stigi Brekkubæjarskóla á Akranesi í góða veðrinu fimmtudaginn í síðustu viku. Nemendur í 1.- 4. bekk mættu á hjólum og æfðu sig að hjóla eftir hjólabraut sem sett var upp á skólalóðinni. Þar gátu þau æft sikk sakk, að halda jafnvægi á hjóli, hjóla undir og færa hluti með annarri hendinni á milli borða á meðan þau hjóluðu. Nemendur gátu líka þrifið hjólin sín á hjólaþvottastöð sem sett var upp.

Hjóladagur í Brekkó - Skessuhorn