Vel gerð vegglistaverk á Hellissandi – MYNDASYRPA

Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni á Snæfellsnesi í síðustu viku og kom við á Hellissandi. Þar kom hann auga á fjölda vegglistaverka sem eru víst yfir 30 talsins og eru á gamla frystihúsinu í bænum og nokkrum öðrum byggingum. Um er að ræða verkefni sem Kári Viðarsson leikari og eigandi Frystiklefans á Rifi stóð fyrir að yrðu gerð árið 2019 þar sem hann fékk tíu vegglistamenn víðs vegar að úr heiminum til að fríska aðeins upp á umhverfið sem verður að segjast að hafi heppnast ansi vel. Blaðamaður smellti af nokkrum myndum af vegglistaverkunum og örugglega misst af mörgum því sum verkin eru á ólíklegustu stöðum.

Vel gerð vegglistaverk á Hellissandi - MYNDASYRPA - Skessuhorn