Fréttir

true

Nýtt dægurlag Baggalúts og Birgittu Haukdal

Baggalútur og Birgitta Haukdal hafa sameinað ofurkrafta sína í nýju dægurlagi sem heitir Partýleitarflokkurinn. Lagið fjallar um örvæntingarfulla leit að gleðskap í Garðabæ, sem ósjaldan er nefndur bær gleðinnar.Lagið er undir sterkum gleði- og samkvæmisáhrifum úr sjöunni og var svokölluð „gervigreind“ nýtt til að útbúa veglegt textamyndband við lagið og ýta undir þau áhrif.Lesa meira

true

Ýmis mál rædd á ársþingi ÍA

Ársþing Íþróttabandalags Akraness var haldið 25. apríl síðastliðinn í Tónbergi, sal Tónlistarskólans. Ungur þingforseti spreytti sig í fyrsta skiptið sem slíkur og var það fulltrúi ÍA í ungmennaráði Akraness, Björn Viktor Viktorsson. Mæting var þokkalega góð og fór formaður kjörbréfanefndar, Trausti Gylfason, yfir kjörbréf og lét vita að 46 fulltrúar væru mættir af þeim 66…Lesa meira

true

Skora á ráðherra að stórefla löggæslu í Dalabyggð

Á fundi sínum 11. maí síðastliðinn samþykkti sveitarstjórn Dalabyggðar ályktun varðandi löggæslumál í Dölum. Hefur hún verið send ráðherra löggæslumála, þingmönnum og öðrum. Þar segir að í Dalabyggð hafi um langt árabil ýmist verið starfandi einn eða enginn lögreglumaður. „Nú er staðan sú að enginn fastráðinn lögreglumaður er starfandi í byggðarlaginu en tveir héraðslögreglumenn sinna…Lesa meira

true

Tvö rauð spjöld í leik ÍH og Kára

ÍH og Kári léku á laugardaginn í 3. deild karla í knattspyrnu og var leikurinn innan dyra í knattspyrnuhöllinni Skessunni í Hafnarfirði. Kári komst yfir strax á annarri mínútu þegar Nikulás Ísar Bjarkason skoraði fyrir gestina. Káramenn voru mun betri í fyrri hálfleik og óheppnir að bæta ekki við öðru marki. Undir lok fyrri hálfleiks…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Skagakonum á móti Haukum

ÍA og Haukar áttust við í 2. deild kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn í Akraneshöllinni. Heimakonur komust yfir á 13. mínútu þegar Sunna Rán Sigurðardóttir átti skot í þverslá Hauka, framherjinn Samira Suleman fylgdi eftir skotinu og kom ÍA í 1-0 forystu. Tíu mínútum fyrir hálfleik jafnaði Viktoría Jóhannsdóttir metin fyrir gestina…Lesa meira

true

Yngsta sundfólkið tók þátt í fjölmennu móti

Landsbankamót ÍRB í sundi fór fram í Keflavík um helgina. 26 sundmenn frá Sundfélagi Akraness á aldrinum 8-15 ára tóku þátt í fjölmennu móti sem alls 429 tóku þátt í. Á föstudaginn voru það 8 ára sundmenn sem stungu sér til sunds í fyrsta skipti á sundmóti í 25 metra laug. Þau stóðu sig mjög…Lesa meira

true

Skallagrímur með tap í fyrsta leik

Fyrsta umferð fjórðu deildar karla í knattspyrnu hófst á fimmtudaginn og daginn eftir mættust í Hveragerði lið Hamars og Skallagríms á Grýluvelli í markaleik. Guido Rances kom heimamönnum í forystu strax á fjórðu mínútu en Maximiliano Ciarniello kom Skallagrími á blað tæpum tíu mínútum síðar. Sölvi Snorrason kom síðan gestunum úr Borgarnesi yfir eftir rúman…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík náði jafntefli fyrir austan

Höttur/Huginn og Víkingur Ólafsvík mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var viðureignin á Fellavelli á Egilsstöðum. Það er óhætt að segja að það hafi ekki rignt inn mörkum í leik liðanna um helgina því niðurstaðan var markalaust jafntefli. Fyrri hálfleikur var að sögn tíðindamanna nokkuð jafn en í seinni hálfleik voru…Lesa meira

true

Slydda og hraglandi mætti gestum af fyrsta skemmtiferðaskipinu

Það var ekkert sérstaklega sumarlegt um að lítast þegar skemmtiferðaskipið Amera lagðist að bryggju í Grundarfirði snemma í morgun. Fjöldi hópferðabifreiða beið eftir farþegum sem ætluðu að njóta fegurðar Snæfellsnessins og svo voru aðrir sem gengu á land til að verja deginum í Grundarfirði. Skipið er með rúmlega sjö hundruð farþega og fjögur hundruð eru…Lesa meira

true

Siglt með fyrsta viðarkurlið á haf út

Í morgun hélt dráttarbáturinn B.B. Server úr höfn á Grundartanga og pramminn Running Tide UR-93 fylgdi fast á eftir. Farmurinn er viðarkurl sem sett verður í sjóinn suður af landinu. Þetta er fyrsta slepping Running Tide á viðarkurli og því söguleg stund í þróun þessarar viðskiptahugmyndar sem miklar vonir eru bundnar við. Á Akranesi starfrækir…Lesa meira