
Skora á ráðherra að stórefla löggæslu í Dalabyggð
Á fundi sínum 11. maí síðastliðinn samþykkti sveitarstjórn Dalabyggðar ályktun varðandi löggæslumál í Dölum. Hefur hún verið send ráðherra löggæslumála, þingmönnum og öðrum. Þar segir að í Dalabyggð hafi um langt árabil ýmist verið starfandi einn eða enginn lögreglumaður. „Nú er staðan sú að enginn fastráðinn lögreglumaður er starfandi í byggðarlaginu en tveir héraðslögreglumenn sinna þar lágmarksþjónustu. Staða löggæslu í Dalabyggð er með öllu ófullnægjandi þar sem engin föst viðvera er á staðnum.“