Verslun Einars Ólafssonar fékk Samfélagsskjöld ÍA. Ljósm. Blik studio

Ýmis mál rædd á ársþingi ÍA

Ársþing Íþróttabandalags Akraness var haldið 25. apríl síðastliðinn í Tónbergi, sal Tónlistarskólans. Ungur þingforseti spreytti sig í fyrsta skiptið sem slíkur og var það fulltrúi ÍA í ungmennaráði Akraness, Björn Viktor Viktorsson. Mæting var þokkalega góð og fór formaður kjörbréfanefndar, Trausti Gylfason, yfir kjörbréf og lét vita að 46 fulltrúar væru mættir af þeim 66 fulltrúum sem rétt hafa til setu á þinginu.

Ýmis mál rædd á ársþingi ÍA - Skessuhorn