Fréttir

true

Barnamenningarhátíð framundan

Með Skessuhorni í dag fylgir átta síðna sérblað í tilefni af Barnamenningarhátíðinni Ok í Borgarfirði og nágrenni. Hátíðin er styrkt af SSV en slík hátíð flakkar á milli héraða á Vesturlandi. Hátíðin nú hefst mánudaginn 8. maí og lýkur 13. maí með lokahófi í Hjálmakletti. Fjölbreytt dagskrá verður í boði þessa daga; sýningar úti og…Lesa meira

true

Keypti sauðfjárbú sautján ára og er yngsti bóndi landsins

Kolbein Óskar Bjarnason má vafalaust titla yngsta bónda landsins. Hann er fæddur árið 2005 og festi nýverið kaup á sauðfjárbúi að Kötlulandi í Reykhólasveit, en hann verður 18 ára í júlí næstkomandi. Kolbeinn er alinn upp á 550 kinda búi en hefur þó áhuga á flestum búskap. ,,Ég er rosalega spenntur fyrir þessu og kann…Lesa meira

true

Strandveiðar hófust af krafti – myndasyrpa úr Grundarfirði

Strandveiðin hófst í morgun, 2. maí, og fór vel af stað. Alls fóru sextán bátar á sjó frá Grundarfirði og var fyrsti báturinn kominn í land um klukkan átta í morgun með skammtinn. Þetta eru aðeins færri bátar en voru að veiðum í fyrra en samkvæmt upplýsingum frá Grundarfjarðarhöfn eru ekki allir farnir af stað…Lesa meira

true

Sindratorfæran verður á laugardaginn

Næstkomandi laugardag fer Sindratorfæran fram á Hellu á Rangárvöllum. Torfæran hefur verið einn stærsti mótorsport viðburður á landinu síðustu ár og hafa 6000 manns lagt leið sína á staðinn og 20 þúsund fylgst með í beinni útsendingu. Að venju eru það Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd Umf. Heklu sem standa að þessu og hafa gert…Lesa meira

true

Ný forysta í brúnni hjá StéttVest

Á aðalfundi Stéttarfélags Vesturlands, sem haldinn var í Alýðuhúsinu 26. apríl síðastliðinn, voru gerðar breytingar á stjórn félagsins. Signý Jóhannesdóttir lét þá af formennsku eftir 15 ár í starfi en í heildina hefur Signý starfað á vettvangi verkalýðsmála í fjóra áratugi. Baldur Jónsson ritari félagsins gaf heldur ekki kost á sér áfram og fer hann…Lesa meira

true

Michelle Bird fer á nýjar slóðir

Listakonan Michelle Bird flytur nú úr Borgarnesi þar sem hún hefur dvalið síðustu 10 ár. Michelle gaf það út í gær að hún myndi setja hús sitt á sölu í vikunni því leið hennar liggur á suðurlandið. Segist hún með flutningunum vera að reyna að fylgja sínum draumum um að vera með enn þá stærri…Lesa meira

true

Keith Jordan Jr. valinn bestur hjá Skallagrími

Lokahóf Skallagríms í meistaraflokki karla í körfuknattleik fór fram á laugardagskvöldið og var haldið á veitingastaðnum Englendingavík í Borgarnesi. Besti leikmaðurinn var kosinn Keith Jordan Jr, besti varnarmaðurinn Bergþór Ægir Ríkharðsson og liðsfélagi ársins var Milorad Sedlarevic. Leikmenn Skallagríms voru með atkvæðarétt í valinu og hefur það verið þannig síðustu ár. Verðlaunin voru hönnuð og…Lesa meira

true

Kortersgjald tekið upp í leikskólaþjónustu Grundarfjarðarbæjar

Á fundi bæjarráðs Grundarfjarðarbæjar 28. apríl síðastliðinn var samþykkt samhljóða að taka upp „kortersgjald“ á Leikskólanum Sólvöllum og Leikskóladeildinni Eldhömrum sem staðsett er innan Grunnskóla Grundarfjarðar fyrir börn á síðasta ári leikskóla. Opnunartími Sólvalla og Eldhamra er milli kl. 7:45 og 16:15 á virkum dögum. Aukalega við átta tíma daglega vistun barns (frá 8-16) hafa…Lesa meira

true

Skagakonur með stórsigur í fyrsta leik

ÍA og Sindri mættust í fyrstu umferð 2. deildar kvenna í knattspyrnu í hádeginu í gær og var leikurinn í Akraneshöllinni. Skagakonur komust yfir eftir rúman hálftíma leik þegar Erla Karitas Jóhannesdóttir fékk boltann í teignum og átti gott skot sem endaði í markinu. Ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik og staðan 1-0…Lesa meira

true

Fyrstu útköll vegna strandveiðibáta

Í morgun voru tvær sjóbjörgunarsveitir kallaðar út til aðstoðar strandveiðibátum sem voru báðir í vandræðum með vélbúnað. Annar fyrir utan Vestmannaeyjar en hinn á Faxaflóa, en strandveiðitímabilið hófst í morgun. Björgunin í Vestmannaeyjum gekk að óskum og var bátur dreginn til hafnar. Laust fyrir klukkan sjö í morgun var svo björgunarbáturinn Sjöfn í Reykjavík kallaður…Lesa meira