
Birta SH og Sif SH leggjast að bryggju fyrir hádegi eftir að hafa komið með skammtinn. Ljósm. tfk
Strandveiðar hófust af krafti – myndasyrpa úr Grundarfirði
Strandveiðin hófst í morgun, 2. maí, og fór vel af stað. Alls fóru sextán bátar á sjó frá Grundarfirði og var fyrsti báturinn kominn í land um klukkan átta í morgun með skammtinn. Þetta eru aðeins færri bátar en voru að veiðum í fyrra en samkvæmt upplýsingum frá Grundarfjarðarhöfn eru ekki allir farnir af stað þannig að þeim á eftir að fjölga. Þeir komu svo hver af öðrum og var nóg að gera hjá starfsmönnum hafnarinnar og löndunarþjónustunnar þennan fyrsta dag strandveiða. Það var því líf og fjör í höfninni.