
Sindratorfæran verður á laugardaginn
Næstkomandi laugardag fer Sindratorfæran fram á Hellu á Rangárvöllum. Torfæran hefur verið einn stærsti mótorsport viðburður á landinu síðustu ár og hafa 6000 manns lagt leið sína á staðinn og 20 þúsund fylgst með í beinni útsendingu. Að venju eru það Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd Umf. Heklu sem standa að þessu og hafa gert nær óslitið síðan 1975. Þetta er fyrsta umferð Íslandsmótsins og eru 23 keppendur skráðir til leiks, þeirra á meðal Íslandsmeistarar síðustu ára, nokkrir nýsmíðaðir bílar auk eldri sem hafa verið betrumbættir í allan vetur.