Fréttir

true

Meiri kjörsókn í Borgarbyggð en fyrir fjórum árum

Klukkan 12 á hádegi höfðu 352 íbúar í Borgarbyggð nýtt atkvæðisrétt sinn í sveitarstjórnarkosningunum þar. Það jafngildir 12,5% kjörsókn. Sveinbjörn Eyjólfsson formaður yfirkjörstjórnar segir að þetta sé prósenti meiri kjörsókn en á sama tíma fyrir fjórum árum. Á kjörskrá í Borgarbyggð eru 2.804.Lesa meira

true

Kosið til sveitarstjórna í dag

Íslendingar ganga í dag að kjörborðinu og kjósa bæjar- og sveitarstjórnir. Hér á Vesturlandi verður kosið í fimm sveitarfélögum þar sem framboðslistar eru í boði. Í fjórum sveitarfélögum er kosið óbundinni kosningu þar sem allir kjörgengir íbúar eru í kjöri, nema í þeim tilfellum sem fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúar geta beðist undan endurkjöri. Nokkuð misjafnt er hvenær…Lesa meira

true

Faxatorg opnað á ný

Seinni partinn í dag var umferð opnuð á ný á Faxatorgi á Akranesi. Framkvæmdum á torginu er þó ekki lokið en ljóst að það léttir á umferðinni með opnun því lokun á torginu hefur mikil áhrif á umferð hluta bæjarins. Þess heldur að á morgun er kosningadagur og því mikil umferð væntanlega á Garðabraut í…Lesa meira

true

Nóg að gerast í boltanum um helgina

Vesturlandsliðin í knattspyrnu eiga öll leiki um og eftir þessa helgi. Besta deildin hófst í apríl á annan í páskum og síðan fylgdu næstu deildir fyrir neðan í kjölfarið. Eftir helgina hefst svo 4. deildin og þar eru tvö Vesturlandslið sem leika í A-riðli 4. deildar en alls eru fimm riðlar í deildinni að þessu…Lesa meira

true

Skýrsla um framtíðarfyrirkomulag Safnahúss Borgarfjarðar

Í ársbyrjun var ákveðið að rýna og endurskoða starfsemi Safnahúss Borgarfjarðar. Sveitarfélagið gerði samning við fyrirtækið Strategíu, sem fékk það verkefni að móta tillögur að framtíðarfyrirkomulagi fyrir Safnahús Borgarfjarðar til næstu ára og nauðsynlegar aðgerðir til að ná fram meginmarkmiðum. Skýrslan er nú komin út samkvæmt frétt á þjónustusíðu Borgarbyggðar. Fyrsti áfangi verkefnisins var greiningarvinna…Lesa meira

true

Stutt við STEAM verkefnið í Menntaskóla Borgarfjarðar

Fyrr í dag skrifuðu Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Bragi Þór Svavarsson skólameistari undir formlega yfirlýsingu um stuðning ráðuneytisins við skólaþróunarverkefni Menntaskóla Borgarfjarðar. Skólinn vinnur nú að skólaþróunarverkefninu „Menntun fyrir störf framtíðar“ og er hluti af því verkefni að innleiða STEAM nám og kennslu við skólann. STEAM samanstendur af vísindum, tækni, verkfræði, listsköpun…Lesa meira

true

Ráðherra hyggst efla lögregluembættin á landsbyggðinni

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur falið sjö lögregluembættum á landsbyggðinni að efla starfslið sitt og auglýsa stöður lögreglumanna. Lögregluumdæmin sem um ræðir eru Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland og Suðurnes. Ekki fylgir tilkynningu þar að lútandi hversu mikið stuðningur við embættin verður aukinn. Þá segir: „Markmiðið er að styrkja embætti lögreglu á landsbyggðinni…Lesa meira

true

Eldisafurðir eru fimmtán prósent útflutningsverðmætis

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins hafa verið fluttar út fiskeldisafurðir fyrir 17,2 milljarða króna. Það er veruleg aukning frá sama tímabili í fyrra, eða sem nemur rúmum 32% í krónum talið. “Þar sem gengi krónunnar var að jafnaði tæplega 5% sterkara á fyrstu fjórum mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra er aukningin nokkuð…Lesa meira

true

Stuðningur til að auka frístundastarf barna í sumar

Ákveðið hefur verið að ríkið styðji fjárhagslega við þau sveitarfélög sem hyggjast í sumar auka við frístundarstarf fyrir börn og unglinga í viðkvæmri stöðu vegna áhrifa heimsfaraldurs.  „Ljóst  er  að  heimsfaraldur Covid-19  hefur  haft  mikil  áhrif  á  líf  flestra  barna  og fjölskyldna hér á landi en ákveðnir hópar barna hafa þó orðið fyrir meiri áhrifum…Lesa meira

true

Íbúafjöldi á Vesturlandi kominn yfir sautján þúsund

Íbúar á Vesturlandi voru 1. maí síðastliðinn 17.063 talsins og hafa aldrei verið fleiri. Fjölgun síðustu sex mánuði, frá 1. desember síðastliðnum er 0,2%. Flestir búa á Akranesi en þar eru nú 7.827 íbúar og hefur reyndar fækkað um nokkra frá því í desember. Í Borgarbyggð eru nú 3.892 búsettir og fjölgar. Þriðja stærsta sveitarfélagið…Lesa meira