Eldisafurðir eru fimmtán prósent útflutningsverðmætis

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fyrstu fjórum mánuðum ársins hafa verið fluttar út fiskeldisafurðir fyrir 17,2 milljarða króna. Það er veruleg aukning frá sama tímabili í fyrra, eða sem nemur rúmum 32% í krónum talið. \"Þar sem gengi krónunnar var að jafnaði tæplega 5% sterkara á fyrstu fjórum mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra er aukningin nokkuð meiri í erlendri mynt eða sem nemur 38%. Útflutningsverðmæti eldisafurða hefur aldrei áður verið meira á fyrsta þriðjungi ársins. Verðmætin eru tæplega 15% af útflutningsverðmæti sjávarafurða á tímabilinu og það hlutfall hefur sömuleiðis aldrei áður verið hærra,\" segir í frétt á Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins.",
  "innerBlocks": []
}
Eldisafurðir eru fimmtán prósent útflutningsverðmætis - Skessuhorn