Fréttir

Kosið til sveitarstjórna í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íslendingar ganga í dag að kjörborðinu og kjósa bæjar- og sveitarstjórnir. Hér á Vesturlandi verður kosið í fimm sveitarfélögum þar sem framboðslistar eru í boði. Í fjórum sveitarfélögum er kosið óbundinni kosningu þar sem allir kjörgengir íbúar eru í kjöri, nema í þeim tilfellum sem fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúar geta beðist undan endurkjöri.\r\n\r\nNokkuð misjafnt er hvenær kjörfundir hefjast, en yfirleitt er það klukkan 9 eða 10. Sömuleiðis er mismunandi hvenær kjörfundi lýkur. Íbúar eru því hvattir til að kynna sér tímasetningar, staðsetningu kjördeilda í auglýsingum sveitarfélaganna sem hlut eiga að máli. Þær má sömuleiðis finna í síðasta og næstsíðasta tölublaði Skessuhorns.",
  "innerBlocks": []
}
Kosið til sveitarstjórna í dag - Skessuhorn