Fréttir

true

Bálhvasst og hríðarbylur – Vegagerðin mun loka vegum

Vegagerðin bendir á að framundan er hvellur í veðrinu, bálhvasst í kvöld einkum um vestan- og norðanvert landið frá því um klukkan 21 og fram yfir miðnætti. „Hríðarbylur á flestum fjallvegum. Í nótt og á morgun er reiknað með þéttum éljum vestantil og þá einnig á láglendi. Blint verður og skafrenningur á fjallvegunum.“ Þá segir…Lesa meira

true

Engin kennsla í næstu viku í Brekkubæjarskóla

Vegna loftgæða og vinnu við hreinsun eftir brunann í Brekkubæjarskóla á Akranesi verður engin kennsla í næstu viku í skólanum. Húsnæði hefur fengist fyrir miðstigs bekkina á öðrum stöðum á Akranesi til að þeir geti komið í staðbundinn skóla frá og með þriðjudegi. Á mánudaginn verður heimaskóli hjá 5. og 7. bekk og starfsstöðvarnar undirbúnar.…Lesa meira

true

Mjög vel gengur að selja í streymið á Þorrablót Skagamanna

Mikil stemning er að myndast fyrir Þorrablóti Skagamanna sem fram fer á morgun í streymi og hefur miðasalan gengið vonum framar, að sögn Guðrúnar Lindar Gísladóttur sem er í undirbúningsnefnd 79 árgangsins. „Í gær vorum við búin að selja yfir 400 miða á streymið og erum við því að ná miðasölunni frá því í fyrra.…Lesa meira

true

Krónan þakkar fyrir sig með afslætti  

„Krónan býður viðskiptavinum sínum upp á 5% afslátt af öllum vörum í verslunum sínum á morgun, laugardaginn 22. janúar. Tilefnið er að fimmta árið í röð eru viðskiptavinir Krónunnar þeir ánægðustu á matvörumarkaði, samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynntar voru fyrr í dag,“ segir í tilkynningu frá Krónunni. „Krónan hlaut hæstu einkunn meðal verslana á…Lesa meira

true

Fjölgar um 27 í einangrun milli daga

Lögreglan á Vesturlandi hefur birt nýjustu tölur yfir fjölda þeirra sem eru í sóttkví eða einangrun á Vesturlandi vegna Covid-19. Nokkur fjölgun er í báðum hópum milli daga en í dag eru 228 einstaklingar í einangrun í landshlutanum en 201 var í einangrun í gær. 109 eru í einangrun á Akranesi, 70 í Borgarnesi, 21…Lesa meira

true

Staðfestir ákvörðun um lokun mannvirkja í Brákarey

Fyrr í mánuðinum bárust Borgarbyggð tveir úrskurðir samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytisins vegna ákvarðana slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar í málefnum Ikan ehf., um lokun húsnæðis að Brákarbraut 27, innsiglun húsnæðis Ikan ehf. og synjun um afhendingu frekari gagna. Ákvarðanir slökkviliðsstjóra voru staðfestar af hálfu ráðuneytis í báðum tilfellum. „Í úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins er staðfest að aðgerðir slökkviliðsstjóra vegna…Lesa meira

true

Fimmtán milljarða samdráttur í verklegum framkvæmdum

Útboðsþing Samtaka iðnaðarins (SI) fer fram í dag í samstarfi við Mannvirki – félag verktaka og Félag vinnuvélaeigenda. Þinghaldið er í streymi og stendur yfir frá klukkan 13.00-15.00. Á þinginu kynna fulltrúar ellefu opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því gott yfirlit yfir helstu útboð ársins. Í nýrri greiningu SI kemur fram…Lesa meira

true

Bóndadagurinn er í dag

Bóndadagurinn er í dag, fyrsti dagur Þorra. Fjölmargir gera sér dagamun í mat af því tilefni. Í verslunum er víða hægt að fá þorramat í ýmsum pakkningum. Meðfylgjandi mynd var hins vegar tekin í Einarsbúð á Akranesi í morgun. Þar getur fólk valið úr kjötborðinu mat sem hentar hverjum og einum. Kjötborðið í Einarsbúð er…Lesa meira

true

Um 7% landsmanna í einangrun eða sóttkví

Í gær voru 1.456 sem greindust með kórónuveiruna innanlands og 211 smit voru greind á landamærunum skv. uppfærðum tölum á covid.is. 56% voru í sóttkví við greiningu. 35 liggja nú á sjúkrahúsi vegna veirunnar og þar af eru þrír á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Á landinu eru nú 10.803 í einangrun og 13.689 í sóttkví,…Lesa meira

true

Vegagerðin varar við skemmdum á slitlagi

Vegagerðin varar við slitlagsskemmdum á milli Svínadals og Bröttubrekku og biður vegfarendur að sýna aðgát á svæðinu. Þá er færð á Skógarströnd erfið þar sem frost er farið úr efsta lagi malarvegarins. Ferjan Baldur mun ekki sigla í dag vegna veðurs.Lesa meira