Fréttir

true

Uppbyggingarsjóður Vesturlands úthlutar 48 milljónum

Í dag voru veittir 95 styrkir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands til verkefna sem efla munu atvinnuþróun og menningu í landshlutanum. Heildarupphæð styrkja nam 47.580.000 króna. Þetta er áttunda árið sem sjóðurinn úthlutar styrkjum til annars vegar menningarverkefna og hins vegar atvinnu- og nýsköpunarverkefna í samræmi við Sóknaráætlun Vesturlands. Í ár var úthlutunarhátíðin rafræn og send út…Lesa meira

true

FVA mætir FNV í Gettu betur á mánudaginn

Fyrri umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, lauk í gærkvöldi með þremur viðureignum. Að keppni lokinni var dregið í viðureignir annarrar umferðar. Önnur umferðin verður í næstu viku og keppt á mánudag og miðvikudag. Skólarnir sem mætast í annarri umferðinni eru: Mánudagur 17. janúar: Kvennaskólinn í Reykjavík – Menntaskólinn á Tröllaskaga Ólafsfirði, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi…Lesa meira

true

ÍA semur við unga og efnilega leikmenn

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert samning við fimm ungar og efnilegar knattspyrnukonur. Fyrst ber að nefna Önnu Þóru Hannesdóttur sem skrifaði undir nýjan samning sem gildir út tímabilið 2023. Anna Þóra sem er fædd 2002 lék 14 leiki með ÍA í Lengjudeildinni síðasta sumar og skoraði eitt mark. Þá hafa þær Selma Dögg Þorsteinsdóttir og Erna…Lesa meira

true

Tíu manna samkomutakmarkanir og skemmtistöðum lokað

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að herða sóttvarnaaðgerðir frá og með miðnætti í kvöld. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir, sem ríkisstjórnin hafi metið: Í fyrsta lagi óbreyttar aðgerðir, í öðru lagi að færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða sem þriðja kost að loka samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin…Lesa meira

true

Fækkar um 22 í einangrun á Vesturlandi

Nú eru 167 í einangrun á Vesturlandi, 22 færri en í gær. Heldur hefur fjölgað í sóttkví milli daga, eru nú 213, en voru 186 í gær. Í Borgarbyggð eru nú 68 í einangrun og jafn margir í sóttkví. Á Akranesi eru 57 í einangrun og 90 í sóttkví; í Ólafsvík eru 17 í einangrun…Lesa meira

true

Aðgerðir til að bæta stöðu Landspítalans

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítalanum svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. „Við þurfum að gera ráð fyrir að næstu vikur verði krefjandi og ástandið er mjög þungt á Landspítala.…Lesa meira

true

Kristín íþróttamaður Borgarfjarðar árið 2021

Í gær var birt myndband á facebook síðu Ungmennasambands Borgarfjarðar þar sem tilkynnt var um fimm efstu íþróttamennina í kjöri Íþróttamanns Borgarfjarðar. Kristín Þórhallsdóttir hefur verið valin íþróttamaður Borgarfjarðar fyrir árið 2021 en hún var á dögunum einnig valin Íþróttamaður Akraness. Þetta er í fyrsta skipti sem sami einstaklingur ber sigur úr býtum í tveimur…Lesa meira

true

Helgi Seljan í starf rannsóknarritstjóra Stundarinnar

Fréttamaðurinn og rannsóknarblaðamaðurinn Helgi Seljan hefur gengið til liðs við Stundina og látið af störfum hjá Ríkissjónvarpinu. Helgi hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín hérlendis og erlendis, meðal annars þrenn blaðamannaverðlaun Íslands og níu tilnefningar til sömu verðlauna. Feril sinn í fjölmiðlum hóf Helgi á héraðsfréttablaðinu Austurglugganum árið 2002 en fór þaðan á DV,…Lesa meira

true

Íslenska landsliðið hefur keppni í kvöld

Íslenska landsliðið í handbolta mun hefja keppni á Evrópumótinu í kvöld þegar liðið mætir Portúgal í B-riðli. Mótið er haldið í Ungverjalandi og Slóvakíu og spilar Ísland sinn fyrsta leik í höll í Búdapest og hefst leikurinn kl. 19:30. Ísland er í riðli með Portúgal, Hollandi og Ungverjalandi og mæta strákarnir Hollendingum á sunnudaginn kl.…Lesa meira

true

Brimir BJJ opnað á nýjum stað á morgun

Brimir BJJ verður opnað á nýjum stað við Smiðjuvelli 17 á Akranesi á morgun. Valentin Fels Camilleri opnaði Brimir BJJ á Akranesi í ágúst 2020 og kennir þar bardagaíþróttina brasilískt jiu-jitsu. Í tilefni opnunarinnar mun bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson heimsækja stöðina og vera með sýnikennslu ásamt Vilhjálmi Arnarssyni og Valentin. Húsið verður opnað kl. 9:45 og…Lesa meira