Fréttir

true

Íbúar á Akranesi orðnir 8000

Áttaþúsundasti íbúinn á Akranesi fæddist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi rétt eftir hádegi síðastliðinn miðvikudag. Foreldrar hans eru Skagamennirnir Yrsa Þöll Eyjólfsdóttir og Logi Breiðfjörð Franklínsson en þau eignuðust son sem var 54 cm og 16 merkur að þyngd. Drengurinn er annað barn þeirra Yrsu og Loga en fyrir eiga þau soninn Sævar Loga sem…Lesa meira

true

Verð fyrir aflann í hæstu hæðum eftir brælutíð að undanförnu

Oft hefur veiðin á línubátnum Kristni HU verið með ágætum. Skipverjar bættu þó aflaverðmæti sitt svo um munaði í gær þegar landað var 18.357 kílóum í Ólafsvíkurhöfn, en það var jafnframt síðasta löndum bátsins fyrir jól. Þorsteinn Bárðarson skipstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að þeir hafi verið á veiðum skammt frá landi við Arnarstapa.…Lesa meira

true

Söfnuðu 500 þúsund krónum fyrir matargjafir á Akranesi

Verslanakeðjan Krónan afhenti hjálparsamtökum rúmlega 450 gjafakort á dögunum. Gjafakortin eru afrakstur jólasöfnunar sem fram fór í verslunum Krónunnar á aðventunni, þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja hjálparsamtök í sínu nærsamfélagi sem sjá um matarúthlutanir í aðdraganda jóla. Viðskiptavinir söfnuðu rúmlega 4,6 milljónum króna og lagði Krónan 5,4 milljón krónur á móti þeirri upphæð. Alls…Lesa meira

true

Hljómsveitin Mersier gefur út sína fyrstu plötu

Hljómsveitin Mersier frá Akranesi gaf út í haust á Spotify lagið Leyndarmál sem fékk mjög góðar viðtökur. Í lok nóvember kom síðan út nýtt lag frá sveitinni sem heitir Heaven´s Own og er undanfari breiðskífunnar Carved In Stone sem er væntanleg á næsta ári. Blaðamaður fékk tvo meðlimi Mersier, Inga Sigurð Ólafsson og Dag Alexandersson,…Lesa meira

true

„Ég er háður því að vera hér“

Magnús Tómasson er höfundur þekktra listaverka eins og Þotuhreiðursins við Leifsstöð og Minnismerkisins um óþekkta embættismanninn við Tjörnina. Hann er borinn og barnfæddur í Reykjavík en hefur búið á Ökrum á Mýrum í áratugi og vill hvergi fara. Blaðamaður Skessuhorns ók í vesturátt frá Borgarnesi einn fallegan haustdag til að hitta þennan hógværa mann sem…Lesa meira

true

Hlustar á jólalög allan desember í eldhúsinu

Hjördís Dögg Grímarsdóttir heldur úti heimasíðunni mömmur.is og er einnig undir því nafni á Facebook og Instagram. Þar deilir hún með lesendum sínum öllu því sem tengist kökum og veisluhöldum en helsta áhugamál Hjördísar er bakstur. Hjördís er Skagakona og vinnur sem kennari í Grundaskóla á Akranesi. Hún er gift Degi Þórissyni og saman eiga…Lesa meira

true

Feigðarför Jóhannesar Helgasonar frá Gíslabæ

Dag einn í janúar árið 1920 lagði ungur maður upp í ferð frá Hellnum á Snæfellsnesi vestur á Hellissand þar sem hann hugðist heimsækja sitt nánasta fólk og komast síðan í skip til Reykjavíkur. Þetta var Jóhannes Helgason frá Gíslabæ, mikill mannkostamaður. Hann lagði þarna grunlaus af stað í sína hinstu ferð. Skessuhorn rifjar upp…Lesa meira

true

Að veita hversdagsleikanum athygli

Á fallegum degi síðla hausts ekur blaðamaður Skessuhorns fram Haukadalinn að bænum Stóra-Vatnshorni og skynjar andrúmsloft tveggja heima. Annars vegar hins hefðbundna búskapar og hins vegar alþjóðlegs anda. Erlendir ferðamenn á leið að Eiríksstöðum renna hjá og aðrir mæta í sína fyrir fram bókuðu gistingu. Erindi dagsins er að spjalla við ferðaþjónustubóndann, kennarann og búfræðinginn…Lesa meira

true

Slökkvilið Grundarfjarðar og Grundarfjarðarbær settu upp skautasvell

Í frosthörkunum sem hafa gengið yfir landið hafa vötn og tjarnir lagt svo hægt er að fara á skauta og leika sér. Þá þótti líka tilvalið að útbúa lítið skautasvell við Grunnskóla Grundarfjarðar þar sem stutt er að fara til að renna sér á svellinu. Slökkvilið Grundarfjarðar fór á dögunum og lét vatn renna yfir…Lesa meira