
Hljómsveitin Mersier. Ljósm. aðsend
Hljómsveitin Mersier gefur út sína fyrstu plötu
Hljómsveitin Mersier frá Akranesi gaf út í haust á Spotify lagið Leyndarmál sem fékk mjög góðar viðtökur. Í lok nóvember kom síðan út nýtt lag frá sveitinni sem heitir Heaven´s Own og er undanfari breiðskífunnar Carved In Stone sem er væntanleg á næsta ári. Blaðamaður fékk tvo meðlimi Mersier, Inga Sigurð Ólafsson og Dag Alexandersson, í heimsókn á skrifstofu Skessuhorns fyrir skömmu til að forvitnast um sveitina. Ingi og Dagur spila báðir á gítar í bandinu en auk þeirra eru Oliver Konstantín Hilmarsson sem spilar á trommur, Aðalgeir Aðalgeirsson er á bassa og Sævar Snorrason sér um sönginn. Allir í hljómsveitinni eru af Skaganum nema Aðalgeir sem er úr bænum og eru á aldrinum 21 til 26 ára.