Fréttir

true

Jólasveinaleikrit í Grundaskóla – MYNDBAND

Jólasveinaleikrit 7. bekkjar Grundaskóla á Akranesi var sýnt tvisvar í morgun í sal skólans við góðar undirtektir og verður önnur sýning klukkan fimm í dag. Verkið var samið og leikstýrt af Angelu Árnadóttur, Lilju Margréti Riedel og Margréti Sögu Gunnarsdóttur Clothier. Allur árgangurinn tók þátt í sýningunni með einhverjum hætti, í leik og söng eða á…Lesa meira

true

Ljósmyndasýning opnuð á 85 ára afmæli Silla

Sigvaldi Arason, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stofnandi Borgarverks, verður 85 ára á sunnudaginn næsta, 18. desember. Af því tilefni býður hann vinum og velunnurum til veizlu í samkomusal Brákarhlíðar í Borgarnesi frá klukkan 12-15. Samtímis verður opnuð ljósmyndasýning á myndum Silla sem sýnir framkvæmdir og þróun í Borgarnesi og nærsveitum. Elstu myndirnar voru teknar árið 1970.…Lesa meira

true

Frítekjumark öryrkja hækkað í 200 þúsund krónur um áramót

Frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um hækkun frítekjumarks örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hefur verið samþykkt á Alþingi. Frítekjumarkið nær tvöfaldast og fer úr tæpum 110.000 kr. á mánuði og upp í 200.000 kr. á mánuði eða 2,4 milljónir króna á ári. Um er að ræða fyrstu hækkun á frítekjumarkinu frá árinu 2009, eða í…Lesa meira

true

Kórinn Hljómur syngur fyrir forsetahjón – MYNDBAND

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid verja degi sínum á Akranesi í dag. Dagskráin er þétt en strax upp úr klukkan átta í morgun voru þau mætt ásamt fylgdarliði á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar. Þar fengu þau leiðsögn um húsnæðið og hvað þar færi fram. Í framhaldi af því var samkoma í sal bæjarskrifstofunnar…Lesa meira

true

Endurbætur gerðar á Olís í Borgarnesi

Undanfarnar vikur hafa verið í gangi endurbætur á húsnæði Olís við brúarsporðinn í Borgarnesi. Veitingasalurinn hefur fengið nýtt útlit og stækkaður. Fleiri breytingar hafa einnig verið gerðar. Veitingastaðurinn Lemon míní hóf starfsemi á Olísstöðinni síðastliðið sumar. Þá hefur nýr verslunarstjóri tekið til starfa; Borgnesingurinn Edda Fanney Guðjónsdóttir tók við starfinu í byrjun október en hún…Lesa meira

true

Mælaborð sem sýnir allar íbúðir í byggingu

Nýtt mælaborð, sem sýnir með gagnvirkum hætti hversu margar íbúðir eru í byggingu á öllu landinu, hefur verið tekið í notkun. Nú er því í fyrsta sinn hægt að sjá á gagnvirku Íslandskorti allar íbúðir í byggingu sem og öll byggingaráform í rauntíma, allt frá útgáfu framkvæmdaleyfis til lokaúttektar. Þannig geta verktakar, lánastofnanir, söluaðilar byggingarefna…Lesa meira

true

Pottverjar héldu Litlu jólin í morgunsárið

Fastagestir í heita pottinum í sundlauginni á Jaðarsbökkum á Akranesi tóku daginn snemma. Klukkan 6 í morgun voru þeir mættir og héldu þar Litlu jólin. Gerðu vel við sig í mat og drykk, eins og sjá má á myndinni. Þau sögðust hafa valið daginn til heiðurs forseta vorum, Guðna Th Jóhannessyni sem kemur í opinbera…Lesa meira

true

„Við teljum okkur veita mjög góða og samkeppnishæfa þjónustu“

Löggilding ehf. hefur nú að auki fengið starfsleyfi til skipaskoðunar Fyrirtækið Löggilding ehf. á Akranesi fékk starfsleyfi frá Neytendastofu í júní á síðasta ári og hóf störf fljótlega eftir það. Fyrirtækið rekur prófunarstofu og er viðurkenndur aðili til löggildingar og prófana og sérhæft í löggildingu og prófunum á mælivogum. Fyrirtækið er með starfsstöð á Smiðjuvöllum…Lesa meira

true

Efnilegir réttarmeinafræðingar í FSN

Nú í haust hófst stór rannsókn í Fjölbrautaskóla Snæfellinga en þá þurftu nemendur að rannsaka glæp sem framinn var í einni af Breiðafjarðareyjum, nánar tiltekið Vestureyjum. Rannsóknin er hluti af sakamálaáfanganum LÍFF2SA05 og er hann kenndur í samkennslu tveggja kennara af náttúru- og raunvísindabraut og félags- og hugvísindabraut. „Um daginn kom Hinrik Konráðsson lögreglumaður í…Lesa meira