Jólasveinaleikrit í Grundaskóla – MYNDBAND

Jólasveinaleikrit 7. bekkjar Grundaskóla á Akranesi var sýnt tvisvar í morgun í sal skólans við góðar undirtektir og verður önnur sýning klukkan fimm í dag. Verkið var samið og leikstýrt af Angelu Árnadóttur, Lilju Margréti Riedel og Margréti Sögu Gunnarsdóttur Clothier. Allur árgangurinn tók þátt í sýningunni með einhverjum hætti, í leik og söng eða á tæknisviðinu. Krakkarnir stjórnuðu t.d. ljósum, míkrafónum, tónlist og myndinnslagi auk þess að semja dansana ásamt Angelu Árnadóttur. Blaðamaður Skessuhorns sá fyrri sýningu dagsins þar sem 5. og 10. bekkur var í áhorfendasalnum. Ljósmyndir náðust af nokkrum atriðum sýningarinnar og tveimur af leikstjórum hennar, þeim Lilju Margréti og Margréti Sögu en Angela Árnadóttir var forfölluð.

Jólasveinaleikrit í Grundaskóla - MYNDBAND - Skessuhorn