Fréttir

true

Fimleikagleði hjá Fimleikafélagi Akraness

Um síðustu helgi hélt Fimleikafélag Akraness Fim-leikana 2022 í fyrsta skipti en um var að ræða innanfélagsgleði þar sem allir flokkar fimleikafélags ÍA fengu tækifæri til að láta ljós sitt skína. Á fimmtudaginn var jólasýning hjá grunnhópum og eftir sýninguna var opin æfing þar sem foreldrar fengu að taka þátt. Á föstudeginum var parkour partý…Lesa meira

true

Lokaverkefni LbhÍ nemenda kynnt í Grundarfirði

Í ágúst síðastliðnum komu nemendur umhverfisskipulags við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í heimsókn til Grundarfjarðar til að kynna sér deiliskipulag bæjarins. Nemendurnir nýttu svo upplýsingarnar til að vinna lokaverkefni sín við skólann en þá var verkefnið að hanna nýja ásýnd bæjarins fyrir framtíðina. Miðvikudaginn 7. desember síðastliðinn komu svo nemendur og kennarar til Grundarfjarðar og kynntu…Lesa meira

true

Diddú og drengirnir í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 18. desember nk. kl. 20.00 mun Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona og sex manna blásarasveit flytja hugljúfa og glæsilega aðventu- og jólatónlist í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Gestir þeirra verða Margrét Bóasdóttir sópran og Kór Saurbæjarprestakalls með stjórnanda sínum Zsuzsönnu Budai. Sr. Þráinn Haraldsson flytur kvöldbæn í lok tónleika og tónleikagestir syngja jólasálm með flytjendum. „Verið hjartanlega…Lesa meira

true

Jólagleði á Hvanneyri

Síðastliðinn sunnudag blésu Íbúasamtökin á Hvanneyri til jólagleði í þorpinu sínu. Gamla bæjartorfan var ljósum prýdd og fjölmenni sem mætti til að fanga hinn eina og sanna jólaanda. Í hlöðu Halldórsfjóss var handverk og matur úr hérað boðið til sölu. Þar söng einnig Kirkjukór Borgarness jólalög og jólasveinar komu og vöktu mikla kátínu. Utan dyra…Lesa meira

true

Skráning á Mannamót landshlutanna er til 20. desember

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður haldið í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 19. janúar 2023 frá klukkan 12 til 17. Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem hátt í þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um samþættingu þjónustu við aldraða í Dalabyggð

Fyrr í dag var undirrituð viljayfirlýsing á milli Dalabyggðar, f.h. Silfurtúns, og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, sem byggir á að kannaður verði grundvöllur þess að hefja undirbúning að samþættingu þjónustu við aldraða í Dalabyggð. Þau Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE og Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar undirrituðu viljayfirlýsinguna. Viljayfirlýsingin er svohljóðandi: Á grundvelli neðan greinds gera Dalabyggð,…Lesa meira

true

Miðbæjarsamtökin hittu nefndarmenn á fundi

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta mánudag var meðal annars fjallað um málefni miðbæjar Akraness. Fulltrúar frá Miðbæjarsamtökunum Akratorgi mættu til fundarins, kynntu samtökin og ræddu hugmyndir um hvernig bæta megi ásýnd gamla miðbæjarins og glæða hann enn meira lífi. Skipulags- og umhverfisráð þakkaði Önnu Guðrúnu, Ólafi Páli og Bjarnheiði fyrir kynningu á samtökunum…Lesa meira

true

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar hélt vel heppnaða jólatónleika

Öllu var til tjaldað á Jólatónleikum Hljómlistarfélags Borgarfjarðar um liðna helgi. Tvennir tónleikar voru haldnir klukkan 17 og 20. Ungir sem aldnir komu fram og sýndu hæfileika sína. Þóra Sif Svansdóttir leiddi tónleikana en fram komu ásamt henni þau Ásta Marý Stefánsdóttir, Hlynur Benediktsson, Eiríkur Jónsson, Bergur Eiríksson og Þorsteinn Logi Þórðarson ásamt hljómsveit og…Lesa meira