
Eftir að viljayfirlýsingin var undirrituð. F.v. Þura Björk Hreinsdóttir, Þórunn B. Einarsdóttir, Þuríður Sigurðardóttir, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir og Björn Bjarki Þorsteinsson. Ljósm. aðsend.
Viljayfirlýsing um samþættingu þjónustu við aldraða í Dalabyggð
Fyrr í dag var undirrituð viljayfirlýsing á milli Dalabyggðar, f.h. Silfurtúns, og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, sem byggir á að kannaður verði grundvöllur þess að hefja undirbúning að samþættingu þjónustu við aldraða í Dalabyggð. Þau Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE og Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar undirrituðu viljayfirlýsinguna.