Skráning á Mannamót landshlutanna er til 20. desember

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður haldið í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 19. janúar 2023 frá klukkan 12 til 17. Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem hátt í þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins.\n\nTilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt að kynnast betur fólki í ferðaþjónustu og fjölmörgum fagaðilum sem koma á Mannamót. „Á Mannamótum hvetjum við sýnendur til þess að leggja áherslu á það sem er í boði yfir vetrartímann. Við viljum opna augu ferðaskrifstofa fyrir tækifærunum sem felast í tímabilinu nóvember til apríl, í þjónustu og upplifun gesta. Markmiðið með Mannamótum er, og hefur alltaf verið, að einfalda ferðaþjónustufólki á höfuðborgarsvæðinu að vísa gestum rétta leið. Sömuleiðis erlendu söluaðilum að kynna sér það sem er í boði á landsbyggðinni án þess að þurfa að fara í ferðalag um allt landið. Á Mannamótum er einnig tækifæri til að hitta fólk frá öllum landshlutum sem síðan leiðir vonandi til þess að viðskiptatækifæri skapast sem skila ferðamönnum til þeirra allan ársins hring. Áhugi erlendra ferðasöluaðila hefur aukist ár frá ári og eru reynslumeiri endursöluðilar að verða fastagestir á viðburðinum,“ segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Vesturlands. Skráningu á Mannamót lýkur 20. desember nk. Verð 22.900 auk vsk.",
  "innerBlocks": []
}
Skráning á Mannamót landshlutanna er til 20. desember - Skessuhorn