
Stekkjastaur og Gluggagægir mættu í Halldórsfjós og vöktu mikla gleði.
Jólagleði á Hvanneyri
Síðastliðinn sunnudag blésu Íbúasamtökin á Hvanneyri til jólagleði í þorpinu sínu. Gamla bæjartorfan var ljósum prýdd og fjölmenni sem mætti til að fanga hinn eina og sanna jólaanda. Í hlöðu Halldórsfjóss var handverk og matur úr hérað boðið til sölu. Þar söng einnig Kirkjukór Borgarness jólalög og jólasveinar komu og vöktu mikla kátínu. Utan dyra var hægt að kaupa jólatré frá Oddsstöðum.