Fréttir

true

Þriðji bekkur í Brekkó hélt jólaball í Stúkuhúsinu – MYNDBAND

Síðasta fimmtudag fóru nemendur ásamt kennurum í 3. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi í heimsókn á Byggðasafnið í Görðum og fengu þar jólafræðslu. Krökkunum var fyrst boðið að setjast inn í baðstofuna í stóra safnhúsinu og fengu þar fræðslu hjá Tinnu Royal um ýmsar hefðir og siði sem fylgdu jólunum í gamla daga og gera…Lesa meira

true

Skautasvell sett upp við Grundaskóla

Eldri kynslóðir minnast þess líklega að hafa skautað á svæði sem Grundaskóli á Akranesi stendur á og var oft nefnt „Krúsin.“ Færri vita að á skipulagi skólalóðar Grundaskóla er gert ráð fyrir nýju skautasvelli og nú er framundan mikill frostakafli. Fram kemur á vef Grundaskóla í morgun að von er á skautasvelli við skólann. „Við…Lesa meira

true

Jólanjólar koma fram á Bjarteyjarsandi

Tríóið Jólanjólar býður upp á tónleika á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði í léttri aðventustemningu, fimmtudaginn 15. desember kl. 20. Tríóið skipa Helgi Georgsson, Jónína Magnúsdóttir og Linda Guðmundsdóttir. „Við Linda Munda kynntumst í grúppunni Syngjum veiruna burt á Facebook. Sungum svo fyrst saman í Svarthamarsrétt í Hvalfirði og Linda spilaði á nikkuna. Helgi er svo shanghajaður…Lesa meira

true

Nýr útipallur við Grundaskóla

Í síðustu viku lauk Lúðvík Helgason, smiður og fyrrum húsvörður í Grundaskóla á Akranesi, við að byggja nýjan og glæsilegan útipall við skólann. Pallurinn er sunnan megin við skólann og mun í framtíðinni hýsa útikennslu og vinnuaðstöðu fyrir nemendur skólans. Einnig er möguleiki á að ganga út úr mötuneytinu og borða úti á góðviðrisdögum. Pallurinn…Lesa meira

true

Snæfell komið í undanúrslit í VÍS bikar kvenna

Það var ljóst síðasta laugardag að fyrstu deildar lið Snæfells er komið í undanúrslit annað árið í röð í VÍS bikar kvenna í körfuknattleik eftir sigur á úrvalsdeildarliði Fjölnis í 8-liða úrslitunum. Það sást strax í leiknum að Snæfellskonur báru enga virðingu fyrir Fjölniskonum þó þær væru einni deild ofar því Snæfell skoruðu fyrstu tíu…Lesa meira

true

Skinkuhorn hlaðvarp – Heiðar Örn Jónsson

Í þessum nýjunda þætti Skinkuhornsins ræðir Gunnlaug við Hvanneyringinn Heiðar Örn Jónsson.Heiðar er giftur Selmu Ágústsdóttur og eiga þau saman þrjú börn: Arnar Inga, Sigurð Örn og Arneyju Söru. Vorið 2020 tók Heiðar við starfi varaslökkviliðsstjóra og eldvarnareftirlitsmanns í slökkviliði Borgarbyggðar og er óhætt að segja að töluverð breyting hafi orðið á slökkviliðinu síðan hann…Lesa meira

true

Jólasveinarnir eru á þvælingi um Stykkishólm

Í ár hefur Þjónustumiðstöðin í Stykkishólmi sett upp jólasveinaratleik. Nú gefst bæjarbúum kostur á að arka um Stykkishólm og leita að jólasveinunum þrettán sem eru þar í ýmsum erindagjörðum fyrir jólin. Sveinarnir munu birtast hér og þar um bæinn, einn af öðrum og hófst ratleikurinn í dag með komu Stekkjarstaurs. Því er um að gera…Lesa meira

true

Háskólar áhugasamir um aukið samstarf

Allir íslensku háskólarnir sóttu um styrki í verkefnið Samstarf háskóla sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, setti á laggir í haust. Stefnt er að því að úthluta allt að einum milljarði króna á þessu ári, 2022, og sambærilegri upphæð árið 2023 en með þessu er háskólunum veittur fjárhagslegur hvati til að stofna til…Lesa meira

true

Saka starfsmann Hamars um kynþáttaníð

Stjórn körfuknattleiksdeildar ÍA sendi í vikulok frá sér yfirlýsingu vegna óviðeigandi ummæla starfsmanns Hamars í leik Hamars og ÍA í 1. deild karla í vikunni sem leið. „Stjórn körfuknattleiksdeildar ÍA harmar og fordæmir með öllu hegðun starfsmanns á vegum Hamars í leik Hamars og ÍA í 1. deild karla sem átti sér stað í gær.…Lesa meira