
Mynd af svæðinu sem skautasvellið verður á við Grundaskóla. Ljósm. vaks
Skautasvell sett upp við Grundaskóla
Eldri kynslóðir minnast þess líklega að hafa skautað á svæði sem Grundaskóli á Akranesi stendur á og var oft nefnt „Krúsin.“ Færri vita að á skipulagi skólalóðar Grundaskóla er gert ráð fyrir nýju skautasvelli og nú er framundan mikill frostakafli. Fram kemur á vef Grundaskóla í morgun að von er á skautasvelli við skólann. „Við látum slíkt tækifæri ekki framhjá okkur fara og í morgun hófst undirbúningur við að koma upp skautasvelli í nýju Krúsinni. Við höfum ekki mörg leiktæki og skólalóðin er eins og önnur skólamannvirki í miklu uppbyggingarferli.“