Snæfell er komið í undanúrslit VÍS bikarsins. Ljósm. sá

Snæfell komið í undanúrslit í VÍS bikar kvenna

Það var ljóst síðasta laugardag að fyrstu deildar lið Snæfells er komið í undanúrslit annað árið í röð í VÍS bikar kvenna í körfuknattleik eftir sigur á úrvalsdeildarliði Fjölnis í 8-liða úrslitunum. Það sást strax í leiknum að Snæfellskonur báru enga virðingu fyrir Fjölniskonum þó þær væru einni deild ofar því Snæfell skoruðu fyrstu tíu stigin í leiknum áður en heimakonur náðu að svara fyrir sig. Fjölnir náði síðan að minnka muninn í þrjú stig eftir rúman sex mínútna leik, 12:15, en gestirnir gáfu bara aftur í og skoruðu næstu ellefu stig án nokkurs svars frá Fjölni fram að lokum fyrsta leikhluta, staðan 12:26 Snæfelli í vil. Í öðrum leikhluta náði Fjölnir aftur að saxa á forskot Snæfells og munurinn aðeins eitt stig um rúman miðjan leikhlutann, 34:35. En þá skellti Snæfell enn á ný í lás í vörninni, skoraði 14 stig gegn aðeins fimm stigum frá Fjölni og leiddi með tíu stigum í hálfleik, 39:49.

Snæfell komið í undanúrslit í VÍS bikar kvenna - Skessuhorn