Fréttir

true

Vel heppnað kótilettukvöld

Meistaraflokkur kvenna í blaki í Grundarfirði stóð fyrir frábæru kótilettukvöldi fimmtudaginn 17. nóvember síðastliðinn. Uppselt var í veisluna en reiknað hafði verið með tæplega hundrað manns í sæti. Kótiletturnar sviku engan en að auki voru frábærir happdrættisvinningar, söngatriði og skemmtisögur. Fjáraflanir sem þessar eru gríðarlega mikilvægar fyrir tímabilið hjá stelpunum enda þurfa þær að ferðast…Lesa meira

true

Faxaflóahafnir taka upp umhverfiseinkunnakerfi fyrir skemmtiferðaskip

Faxaflóahafnir taka upp umhverfiseinkunnarkerfi fyrir skemmtiferðaskip að norskri fyrirmynd, Environmental Port Index (EPI), með ívilnun eða álögum eftir umhverfishegðun skipa á hafnarsvæði. EPI á upptök sín í Noregi þar sem höfnin í Björgvin, Det Norske Veritas (DNV), ásamt helstu skemmtiferðaskipahöfnum Noregs tóku sig saman og þróuðu nýtt umhverfiseinkunnarkerfi sem tekur sérstaklega á umhverfishegðun skipa á…Lesa meira

true

Unnið við LED götulýsingar

Fyrir helgi hófst á ný LED-væðing götuljósa í Stykkishólmi. Samkvæmt frétt á heimasíðu bæjarins verður byrjað á að endurnýja ljós á flötunum og í framhaldi verður skipt um hausa á stærstu staurunum í bænum. Samhliða því verður gert við bilaða staura og unnið áfram að þessu næstu daga. Sveitarfélagið tók við ljósastaurum af Rarik árið…Lesa meira

true

Leikskólinn Sólvellir innleiðir gæðaviðmið

Í vor hófst vinna í leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði við að innleiða gæðaviðmið um leikskólastarf en það er eins konar uppskrift að góðu leikskólastarfi sem hver skóli gerir að sínum. Kerfisbundið eru gæðaviðmiðin innleidd með því að þræða þau í gegnum allt starfið. Notaðar eru m.a. kannanir, rýni á fundum og margt fleira til þess…Lesa meira

true

Íþróttaeldhugi ársins valinn í fyrsta sinn

Ný verðlaun, Íþróttaeldhugi ársins, verða veitt samhliða lýsingu á kjöri Íþróttamanns ársins 2022. ÍSÍ í samvinnu við Lottó standa að nýju verðlaununum til að heiðra sjálfboðaliða innan íþróttahreyfingarinnar og vekja meiri athygli á starfi þeirra. Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, segir íþróttahreyfinguna standa í mikilli þakkarskuld við þá einstaklinga sem gefa af tíma sínum til…Lesa meira

true

Sýningin Stærðfræði og listir færð í Grundaskóla

Á nýliðnum Vökudögum á Akranesi var sýningin Stærðfræði og listir til sýnis í Tónlistarskólanum við Dalbraut. Borghildur Jósúadóttir kennari í Grundaskóla á Akranesi sá um að setja sýninguna upp en hún inniheldur verkefni frá nemendum í 5. og 6. bekk í Grundaskóla. Borghildur segir að formlega sé hún hætt að kenna en komi inn í…Lesa meira

true

Hafa opnað kjötvinnslu á Eiði

Hjónin Bjarni Sigurbjörnsson og Guðrún Lilja Arnórsdóttir sitja sjaldnast auðum höndum enda nóg að gera á bænum Eiði við Kolgrafafjörð þar sem þau búa. Nú nýlega hafa þau komið upp glæsilegri kjötvinnslu þar sem þau geta afgreitt úrvals kjötvörur beint frá býli. Fimmtudaginn 17. nóvember voru þau með opið hús þar sem þau buðu gestum…Lesa meira

true

Þrjár nýjar bækur frá MTH-útgáfu

Fyrir skemmstu var útgáfu þriggja bóka frá MTH fagnað í Pennanum Eymundsson á Akranesi. Um var að ræða ljósmyndabók Friðþjófs Helgasonar „Svona er Akranes“ en þetta er fimmta bókin sem hann sendir frá sér með ljósmyndum af Akranesi. Ásmundur Ólafsson sendir núna frá sér sína aðra bók með þáttum um sögu og mannlíf á Skaganum.…Lesa meira

true

Hjartarfjós á Hvanneyri verður slökkvistöð

Borgarbyggð og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa í haust átt í viðræðum um leigu á húsnæði í eigu skólans fyrir starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar á Hvanneyri. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að samkomulag hafi náðst og er búið að skrifa undir samning. „Þetta eru mikil gleðitíðindi enda er með þessu verið að tryggja öryggi íbúa sveitarfélagsins á Hvanneyri…Lesa meira