Fréttir

true

Læknaskortur tekur á

Enginn læknir hefur verið tiltækur í Ólafsvík á að verða þriðju viku. Íbúar í Ólafsvík eru ósáttir við stöðuna en umræða um málið hefur vaknað á samfélagsmiðlum. Engin tilkynning hefur verið gefin út frá Heilbrigðisstofnun Veturlands. Ekki náðist í forstjóra HVE  við vinnslu fréttarinnar en bæjarstjóri Snæfellsbæjar hafði þetta um málið að segja: ,,Ég hef…Lesa meira

true

Skortir samræmt eftirlit og utanumhald yfir kostnað við úrgang

Valgeir Páll Björnsson frá Sorpu flutti erindi á ráðstefnu um úrgangsmál sem fram fór á Hótel Hamri í Borgarnesi í síðustu viku. Þá komu fulltrúar sveitarfélaganna á Vestulandi saman til að kynna sér nýjar leiðir og áskoranir í sorpmálum. Valgeir Páll segir fjármál er varða sorphirðu vera í óvissu en á landsvísu skortir betri yfirsýn…Lesa meira

true

Sundmenn SA stóðu sig með prýði

178 sundmenn frá 15 félögum tóku þátt á Íslandsmeistaramóti í 25 metra laug sem fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina. Mótið var með nýju sniði í ár þar sem unglingameistaramót fór fram fyrir hádegi og Íslandsmeistaramótið seinnipartinn. Tíu sundmenn frá Sundfélagi Akraness tóku þátt í mótinu: Alex Benjamín Bjarnason, Ásdís Erlingsdóttir, Einar Margeir…Lesa meira

true

Vel heppnað kótilettukvöld

Meistaraflokkur kvenna í blaki í Grundarfirði stóð fyrir frábæru kótilettukvöldi fimmtudaginn 17. nóvember síðastliðinn. Uppselt var í veisluna en reiknað hafði verið með tæplega hundrað manns í sæti. Kótiletturnar sviku engan en að auki voru frábærir happdrættisvinningar, söngatriði og skemmtisögur. Fjáraflanir sem þessar eru gríðarlega mikilvægar fyrir tímabilið hjá stelpunum enda þurfa þær að ferðast…Lesa meira

true

Faxaflóahafnir taka upp umhverfiseinkunnakerfi fyrir skemmtiferðaskip

Faxaflóahafnir taka upp umhverfiseinkunnarkerfi fyrir skemmtiferðaskip að norskri fyrirmynd, Environmental Port Index (EPI), með ívilnun eða álögum eftir umhverfishegðun skipa á hafnarsvæði. EPI á upptök sín í Noregi þar sem höfnin í Björgvin, Det Norske Veritas (DNV), ásamt helstu skemmtiferðaskipahöfnum Noregs tóku sig saman og þróuðu nýtt umhverfiseinkunnarkerfi sem tekur sérstaklega á umhverfishegðun skipa á…Lesa meira

true

Unnið við LED götulýsingar

Fyrir helgi hófst á ný LED-væðing götuljósa í Stykkishólmi. Samkvæmt frétt á heimasíðu bæjarins verður byrjað á að endurnýja ljós á flötunum og í framhaldi verður skipt um hausa á stærstu staurunum í bænum. Samhliða því verður gert við bilaða staura og unnið áfram að þessu næstu daga. Sveitarfélagið tók við ljósastaurum af Rarik árið…Lesa meira

true

Leikskólinn Sólvellir innleiðir gæðaviðmið

Í vor hófst vinna í leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði við að innleiða gæðaviðmið um leikskólastarf en það er eins konar uppskrift að góðu leikskólastarfi sem hver skóli gerir að sínum. Kerfisbundið eru gæðaviðmiðin innleidd með því að þræða þau í gegnum allt starfið. Notaðar eru m.a. kannanir, rýni á fundum og margt fleira til þess…Lesa meira

true

Íþróttaeldhugi ársins valinn í fyrsta sinn

Ný verðlaun, Íþróttaeldhugi ársins, verða veitt samhliða lýsingu á kjöri Íþróttamanns ársins 2022. ÍSÍ í samvinnu við Lottó standa að nýju verðlaununum til að heiðra sjálfboðaliða innan íþróttahreyfingarinnar og vekja meiri athygli á starfi þeirra. Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, segir íþróttahreyfinguna standa í mikilli þakkarskuld við þá einstaklinga sem gefa af tíma sínum til…Lesa meira

true

Sýningin Stærðfræði og listir færð í Grundaskóla

Á nýliðnum Vökudögum á Akranesi var sýningin Stærðfræði og listir til sýnis í Tónlistarskólanum við Dalbraut. Borghildur Jósúadóttir kennari í Grundaskóla á Akranesi sá um að setja sýninguna upp en hún inniheldur verkefni frá nemendum í 5. og 6. bekk í Grundaskóla. Borghildur segir að formlega sé hún hætt að kenna en komi inn í…Lesa meira