Fréttir

true

Ein bjartasta vonin í netöryggismálum

Guðrún Valdís Jónsdóttir frá Akranesi vann til verðlauna á ráðstefnunni Nordic Women In Tech sem fram fór í Gautaborg í Svíþjóð í síðustu viku. Guðrún starfar hjá íslenska fyrirtækinu Syndis sem yfirmaður upplýsingaöryggis og ráðgjafi á því sviði. Guðrún lærði tölvunarfræði í Princeton í Bandaríkjunum og starfaði við netöryggismál í New York áður en hún…Lesa meira

true

Fjölgun í nær öllum sveitarfélögum á Vesturlandi

Íbúar á Vesturlandi voru 17.462 talsins þriðjudaginn 1. nóvember síðastliðinn. Á ellefu mánaða tímabili frá 1. desember 2021 og til 1. nóvember sl. hefur fjölgað í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi, utan Dalabyggðar þar sem fækkaði um fjóra á tímabilinu, eða um 0,6%. Athygli vekur að nú vantar einungis 52 upp á íbúafjöldann á Akranesi nái…Lesa meira

true

Sex í sama rúmi fær góðar viðtökur í Snæfellsbæ

Síðastliðinn fimmtudag frumsýndi leikfélagið Lauga í Snæfellsbæ gamanleikritið Sex í sama rúmi í félagsheimilinu Röst á Hellissandi. Guðmundur Jensson, formaður leikfélagsins Laugu, segir í samtali við Skessuhorn að Lauga hafi verið stofnuð í mars á þessu ári. „Það var fyrir tilviljun að ég komst að því að það var búið að leggja niður Leikfélag Ólafsvíkur.…Lesa meira

true

Ný lög um sorpmál setja sveitarfélög í krefjandi stöðu

Ný lög um meðhöndlun úrgangs setja sveitarfélögum skyldur á hendur hvað söfnun og ráðstöfun úrgangs varðar. Skylt verður um næstu áramót að auka sérsöfnun við heimili, svo eitthvað sé nefnt en breytingar má rekja til nýrrar úrgangslöggjafar í Evrópu. Við innleiðingu laganna fengu sveitarfélög og atvinnulíf góðan tíma til umsagnar á lögunum og hefur greinargóð…Lesa meira

true

Samþykkt að breyta frístundasvæði í íbúðarbyggð

Skipulagsstofnun samþykkti 27. október síðastliðinn breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Sveitarstjórn hafði fyrir sitt leyti samþykkt breytinguna 12. október sl. Í breytingunni felst að 30 hektara hluti frístundasvæðis, sem nefnt er F128 í landi Litlu-Tungu í Húsafelli, verður skilgreint sem íbúðarbyggð (Í13). Frístundasvæðið minnkar sem því nemur og verður 68 ha eftir breytingu. Skipulagsstofnun hefur…Lesa meira

true

Hreppti Henriette Hustinx verðlaunin í Hollandi

Anna Þórhildur Gunnarsdóttir, píanóleikari frá Brekku í Norðurárdal, vann til alþjóðlegra verðlauna í Hollandi 21. október síðastliðinn. Anna hóf að læra á píanó sjö ára við Tónlistarskóla Borgarfjarðar þar sem hún kláraði framhaldspróf. Leiðin lá svo í Listaháskóla Íslands þar sem hún kláraði bakkalárgráðu sína en þá fór hún til Maastricht í Hollandi þar sem…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að 24 íbúða húsi við Asparskóga 3

Síðdegis í dag var tekin skóflustunga við Asparskóga 3 á Akranesi þar sem Bjarg íbúðafélag hses. hyggst byggja 24 íbúðir í þremur sjálfstæðum húsum á tveimur hæðum. Húsin mynda eins konar randbyggð, með garði í miðju sem verður opinn til suðvesturs. Íbúðirnar eru tveggja til fimm herbergja með sérinngangi frá svalagangi. Húsið verður byggt með…Lesa meira

true

Enginn slasaðist þegar byggingarkrani féll á Akraneshöllina

Rosalegar drunur og skruðningar kváðu við inni í Akraneshöllinni á Akranesi þegar byggingarkrani féll ofan á höllina, nú rétt í þessu. Kraninn fór í gegnum loftið á höllinni og myndaðist þar stórt gat. Mikil mildi var að enginn slasaðist þegar atvikið átti sér stað því brot hrundu úr loftinu. Krakkar sem voru á fótboltaæfingu urðu…Lesa meira

true

Íbúðir á Þjóðbraut 3 afhentar íbúum

Fimmtudaginn 10. nóvember sl. voru fyrstu íbúðirnar á Þjóðbraut 3 á Akranesi formlega afhentar skjólstæðingum Brákar hses. og leigufélagsins Bríetar. Það var hluti fatlaðra íbúa á Akranesi sem fengu þar afhentar nýjar íbúðir og var með því tryggt öruggt húsnæði til frambúðar. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, bæjarstjórn Akraness auk fulltrúa frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Brák…Lesa meira