Nú eru 23 hús í byggingu á svæðinu og verða þau fyrstu afhent fullbúin nýjum eigendum á næstunni. Ljósm. bk.

Samþykkt að breyta frístundasvæði í íbúðarbyggð

Skipulagsstofnun samþykkti 27. október síðastliðinn breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Sveitarstjórn hafði fyrir sitt leyti samþykkt breytinguna 12. október sl. Í breytingunni felst að 30 hektara hluti frístundasvæðis, sem nefnt er F128 í landi Litlu-Tungu í Húsafelli, verður skilgreint sem íbúðarbyggð (Í13). Frístundasvæðið minnkar sem því nemur og verður 68 ha eftir breytingu. Skipulagsstofnun hefur þegar auglýst breytinguna í Stjórnartíðindum og hefur hún því öðlast gildi.

Samþykkt að breyta frístundasvæði í íbúðarbyggð - Skessuhorn